Innlent

26 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa rúmlega 11 þúsund manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.
Alls hafa rúmlega 11 þúsund manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Alls greindust 26 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sextán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 62 prósent nýgreindra. Tíu voru utan sóttkvíar, eða um 38 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

Alls eru nú 629 í einangrun, en voru 687 í gær. 1.349 eru nú í sóttkví, en voru 1.463 í gær. 583 eru nú í skimunarsóttkví.

Átta eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en voru níu í gær. Enginn er á gjörgæslu.

Fimmtán þeirra sem greindust innanlands í gær voru fullbólusettir en ellefu óbólusettir.

Þrír greindist á landamærum í gær – tveir í fyrri skimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki eins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 228,5, en var 238,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 11,5, en var 13,4 í gær.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 228,5, en var 238,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 11,5, en var 13,4 í gær.Alls hafa 11.063 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 932 einkennasýni í gær, 1.424 sýni á landsmærum og þá greindust 561 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×