Mesta áskorunin að fá þekkta einstaklinga til að tala um kynlíf Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. ágúst 2021 15:30 Dögg á frumsýningu Allskonar kynlíf. „Við höfum verið að fá frábær viðbrögð við þáttunum. Fólk er að senda okkur að 16 ára unglingar séu að kalla á mömmu og pabba til að horfa á þáttinn saman,“ segir Dögg Mósesdóttir leikstjóri þáttanna Allskonar kynlíf. „
Einn sagðist hafa setið með sjötugri móður sinni, horft og rætt um kynlíf og svo barst ein saga af eldir borgurum sem voru að ræða þáttinn sín á milli og vildu meiri umfjöllun um sinn aldurshóp. Það er dásamlegt að heyra að svona ólíkar kynslóðir séu að tengja og horfa saman.“ Mættu til að „hössla“ konur Í þáttunum Allskonar kynlíf fjalla Sigga Dögg og Ahd Tamimi um, líkt og nafnið gefur til kynna, alls konar kynlíf. Sex þættir eru í þessari fyrstu seríu, sem framleidd er af Freyja Filmwork. „Þættirnir eru mjög léttir og skemmtilegir en um leið fræðandi og munu eflaust vekja upp umræður á flestum heimilum,“ segir Dögg í samtali við Vísi. „Við Þórey Mjallhvít, leikstjóri og framleiðandi vorum búnar að ákveða að fara á nokkrar sjónvarpsstöðvar með fimm verkefni en vorum ekki komin með öll og ákváðum að fara á kvennakvöld hjá Rithöfundasambandinu, með það á bak við eyrað að „hössla“ konur til að gera þætti með okkur. Þar var Sigga Dögg, sem ég þekkti lítillega í gegnum sameiginlega vini. Ég lokkaði hana til okkar og hún var auðvitað löngu búin að pæla í að gera svona þætti og var meira en til, þannig að áhuginn var gagnkvæmur. Stöð 2 valdi svo þetta verkefni af þessum fimm.“ Ahd og Sigga Dögg á frumsýningu Allskonar kynlíf. Þurfum á gleðinni að halda Dögg hafði fyrir þetta aldrei unnið með Siggu Dögg áður. „Það er frábært að vinna með henni, hún er eldklár, virkar mjög vel fyrir framan myndavélarnar, þarf yfirleit ekki nema eina töku til að negla það sem hún á að gera og svo gaf hún sig alla í verkefnið. Svo unnu hún og Ahd svo fallega saman. Þau eru algjörar hetjur í mínum augum, berskjölduðu sig algjörlega svo að okkur hinum geti liðið betur í eigin skinni,“ segir Dögg. „Þetta verkefni er skemmtilegasta verkefni sem ég hef unnið, það má segja að þættirnir hafi bjargað geðheilsunni minni á þessum Covid tímum. Það var svo mikil gleði og mikið hlegið í tökum, mér fannst alltaf eins og ég væri að koma af sólarströnd í lok dags þegar ég áttaði mig á því að út fyrir okkar búbblu geisaði heimsfaraldur og síendurteknir stormar. Ég vona að gleðin skili sér til fólks, ég held við þurfum öll á henni að halda.“ Freyja Filmwork er kvennarekið fyrirtæki og fyrir utan Ahd meðstjórnanda Siggu Daggar, var enginn karlmaður á tökustað þáttanna. „Við erum með stefnu þar sem við reynum að finna konur í sem flest hlutverk fyrir framan og aftan myndavélarnar til að vega á móti kynjahallanum í faginu og skapa eftirspurn eftir öðrum kynjum og kynhneigðum en gagnkynhneigðum hvítum karlmönnum. Við vorum þess vegna með hundrað prósent kvennatökuteymi og svo kom Ahd til liðs við Siggu Dögg sem kom með alveg nýja sýn á hlutina frá sjónarhóli samkynhneigðs karlmanns sem er Íslendingur af erlendum uppruna.“ Frá frumsýningu Allskonar kynlíf Þurftu að endurorða tilboðið Tökurnar gengu eins og smurð vél, allt á áætlun og ekkert vesen. „Það skemmtilegasta voru allar samræðurnar sem við sem tökuteymið, Sigga og Ahd áttum um kynlíf og svo heima við kvöldverðarboðið við aðra fjölskyldumeðlimi. Mesta áskorunin var að fá þekkta einstaklinga til að koma í þáttinn og tala um kynlíf, margir misskildu okkur og héldu að við værum að biðja þá um að tala um sitt persónulega kynlíf svo að við þurftum aðeins að endurorða tilboðið og þá gekk betur að fá fólk til liðs við okkur. Svo var auðvitað allt í blússandi Covid en við náðum að aðlaga okkur fljótt að þeim aðstæðum.“ Dögg er með mörg spennandi verkefni í gangi og er spennt fyrir haustinu. „Við erum nú að leggja drög að seríu tvö af Allskonar kynlíf, þar sem okkur langar að fara með efnið enn dýpra og gera meira úr því. Ég er svo með stóra leikna þáttaröð sem ég er búin að vera að þróa í tíu ár og er að vona að fari að líta dagsins ljós. Svo er heimildarmyndin mín Aftur heim? á Vodafone leigunni. Hún fjallar um heimafæðingar, þannig að kynlíf og fæðingar hafa átt hug minn allan undanfarin ár.“ Annar þáttur af Allskonar kynlíf er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld en fyrsta þáttinn er hægt að horfa á inni á Stöð 2 + efnisveitunni.
Kynlíf Allskonar kynlíf Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Kennarinn sleppti kynfræðslunni: „Þetta var mikið tabú“ Í fyrsta þættinum af Allskonar kynlíf var meðal annars fjallað um fyrsta skiptið og fyrstu kynni af kynlífi. 21. ágúst 2021 10:00 „Alveg sama þó fólk sé ekki búið að tannbursta sig“ „Við töluðum við fólk á ótrúlega breiðu aldursbili og spurðum þau út í fyrsta skiptið þeirra og alls konar. Við fengum ótrúlega einlægar frásagnir,“ segir Sigga Dögg um viðmælendurna í nýjum þáttum sínum Allskonar kynlíf. 18. ágúst 2021 09:31 Hélt fjölskyldufund og tilkynnti að hún verður nakin í nýjum þáttum „Foreldrar eiga að ræða við unglingana sína um kynlíf, enginn á að skammast sín fyrir neitt og svo á fjölskyldan að horfa saman á þættina,“ segir Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur sem í sumar fer af stað með nýja þætti á Stöð 2 sem kallast Allskonar kynlíf. 23. júní 2021 13:31 Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Fleiri fréttir Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Sjá meira
Kennarinn sleppti kynfræðslunni: „Þetta var mikið tabú“ Í fyrsta þættinum af Allskonar kynlíf var meðal annars fjallað um fyrsta skiptið og fyrstu kynni af kynlífi. 21. ágúst 2021 10:00
„Alveg sama þó fólk sé ekki búið að tannbursta sig“ „Við töluðum við fólk á ótrúlega breiðu aldursbili og spurðum þau út í fyrsta skiptið þeirra og alls konar. Við fengum ótrúlega einlægar frásagnir,“ segir Sigga Dögg um viðmælendurna í nýjum þáttum sínum Allskonar kynlíf. 18. ágúst 2021 09:31
Hélt fjölskyldufund og tilkynnti að hún verður nakin í nýjum þáttum „Foreldrar eiga að ræða við unglingana sína um kynlíf, enginn á að skammast sín fyrir neitt og svo á fjölskyldan að horfa saman á þættina,“ segir Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur sem í sumar fer af stað með nýja þætti á Stöð 2 sem kallast Allskonar kynlíf. 23. júní 2021 13:31