Öruggt hjá Rosenborg gegn FH í Þrándheimi 29. júlí 2021 18:50 Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar hans í Rosenborg áttu í litlum vandræðum með FH í einvíginu. Vísir/Hulda Margrét FH hafði tapað fyrri leik liðanna 2-0 í Kaplakrika og áttu því ærið verkefni fyrir höndum er þeir sóttu Rosenborg heim í kvöld. Fátt markvert átti sér stað í steindauðum fyrri hálfleik, sem kom sér ágætlega fyrir heimamenn, og staðan að honum loknum markalaus en 2-0 fyrir þá norsku í einvíginu. Rosenborg hóf síðari hálfleikinn hins vegar af krafti þar sem Dino Islamovic kom liðinu í forystu á 49. mínútu. Aðeins fimm mínútum síðar tvöfaldaði Stefano Vecchia muninn með marki beint úr aukaspyrnu fyrir Rosenborg. Guðmann Þórisson lagaði stöðuna fyrir FH með marki eftir hornspyrnu á 74. mínútu en Emil Konradsen Ceide endurnýjaði tveggja marka forskot Rosenborgar aðeins tveimur mínútum síðar. Ceide gekk svo endanlega frá FH-ingum með öðru marki sínu undir lok leiks. Rosenborg vann því 4-1 sigur og einvígið samanlagt 6-1 og eru komnir áfram í 3. umferð forkeppninnar þar sem þeirra bíður slóvenska liðið Domzale. Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan leikinn í vörn Rosenborgar. Sambandsdeild Evrópu FH
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti