Tíu leikmenn Vestra unnu Gróttu eftir ótrúlegan lokakafla Valur Páll Eiríksson skrifar 28. júlí 2021 22:30 Vestri vann 4-3 sigur á Gróttu í síðari leik kvöldsins í Lengjudeild karla í fótbolta á Ísafirði. Sigurinn skýtur vestanmönnum upp í 4. sæti deildarinnar.
Vestri var með 19 stig fyrir leik kvöldsins í 7. sæti deildarinnar en Grótta gat farið upp fyrir þá með sigri, en Seltirningar voru sæti neðar með 17 stig. Pétur Bjarnason skoraði eina mark fyrri hálfleiks er Vestri leiddi 1-0 í hléi. Hann bætti öðru marki við á á 56. mínútu og heimamenn því í vænlegri stöðu. Jesus Meneses, leikmaður Vestra, fékk hins vegar sitt annað gula spjald, og þar með rautt á 74. mínútu. Við tóku býsna skrautlegar lokamínútur í kjölfarið. Meneses fékk spjaldið fyrir brot innan teigs og skoraði Pétur Theódór Árnason, markahæsti leikmaður deildarinnar, af punktinum til að minnka muninn. Hann bætti öðru marki sínu við níu mínútum síðar, á 83. mínútu, og staðan 2-2. Benedikt V. Warén skoraði aftur á móti strax í næstu sókn fyrir Vestra, á 84. mínútu, og á 88. mínútu fullkomnaði Pétur Bjarnason þrennu sína til að koma tíu Vestramönnum 4-2 yfir. Arnar Þór Helgason, fyrirliði Gróttu, skoraði mínútu síðar en nær komust Gróttumenn ekki. Vestri vann því 4-3 sigur eftir ótrúlegan lokakafla og fer liðið með sigrinum upp í 4. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 14 leiki. Kórdrengir eru með sama stigafjölda en betri markatölu sætinu ofar, en þeir eiga tvo leiki inni á Vestra.
Lengjudeildin Vestri Grótta Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Sjá meira