Viðar Ari á skotskónum í sigri Sandefjord Valur Páll Eiríksson skrifar 28. júlí 2021 19:00 Viðar Ari hefur átt glimrandi tímabil í Noregi. vísir/getty Þrír Íslendingar voru í eldlínunni er fjórir leikir fóru fram í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Viðar Ari Jónsson var sá eini sem fagnaði sigri en hann skoraði í þokkabót.
Viðar Ari hefur fundið sig vel á hægri kantinum hjá liði sínu Sandefjord í sumar og hann byrjaði þar er það heimsótti Odd Grenland í kvöld. Staðan var 1-1 þegar Viðar Ari lagði upp mark fyrir félaga sinn Alexander Tveter undir lok fyrri hálfleiks og staðan 2-1 í hléi. Eftir aðeins fimm mínútna leik í síðari hálfleiknum skoraði Viðar svo sjálfur, sitt fimmta mark í deildinni, til að tvöfalda forystu gestanna. Odd minnkaði muninn undir lok leiks en Sandefjord hélt út og vann 3-2 sigur. Sigurinn þýðir að Sandefjord jafnar Odd að stigum, með 19, í deildinni, rétt eins og Strömgodset sem þurfti að þola tap. Ari Leifsson spilaði þar allan leikinn í vörn Strömgodset sem tapaði 2-1 fyrir Haugesund á útivelli en Valdimar Þór Ingimundarson var ekki í leikmannahópi Strömgodset. Strömgodset er með besta markatölu liðanna þriggja og er í 8. sæti, Sandefjord er í því níunda en Odd í tíunda af 16 liðum. Emil Pálsson kom inn á sem varamaður þegar um hálftími var eftir af leik Lilleström og Sarpsborgar. Emil og félagar þurftu að sætta sig við 2-0 tap fyrir Lilleström. Sarpsborg er í 12. sæti deildarinnar með 14 stig, fjórum stigum frá Tromsö í 14. sæti, sem er umspilssæti um fall úr deildinni. Fimm stig eru niður í Stabæk í efra fallsætinu en Stabæk vann 2-1 sigur á Mjöndalen í fjórða leik kvöldsins.
Norski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Sjá meira