Innlent

Skipu­leggj­endur Reykja­víkur­mara­þonsins liggja undir feldi

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Silja Úlfarsdóttir, upplýsingafulltrúi Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir að venjulega taki um fimmtán þúsund manns þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.
Silja Úlfarsdóttir, upplýsingafulltrúi Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir að venjulega taki um fimmtán þúsund manns þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Stjórnendur Íþróttabandalags Reykjavíkur skoða nú hvernig mögulegt sé að útfæra Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka með tilliti til hertra sóttvarnaaðgerða. Reykjavíkurmaraþonið var ekki haldið á síðasta ári vegna þágildandi sóttvarnaráðstafana.

Silja Úlfarsdóttir, upplýsingafulltrúi ÍBR, segir starfsfólk Íþróttabandalagsins ennþá vera að meta stöðuna í samráði við almannavarnir.

„Við erum eiginlega bara undir mjög stórum feldi með mjög mörgum að taka stöðuna á málinu.“

Reykjavíkurmaraþonið er stærsta hlaup ársins og á að fara fram þann 21. ágúst næstkomandi. Um 15 þúsund manns taka þátt í hlaupinu ár hvert en eins og kunnugt er kveða núgildandi sóttvarnaraðgerðir á um tvö hundruð manna fjöldatakmark.

Núgildandi sóttvarnaraðgerðir gilda til 13. ágúst og mikil óvissa ríkir um hvað tekur við eftir það.

„Við vorum ansi bjartsýn að geta haldið hlaupið í ár en við erum bara að skoða þetta. En við erum ennþá nokkuð bjartsýn.“

Reykjavíkurmaraþoninu var aflýst í fyrra sökum þágildandi sóttvarnaráðstafana. Hins vegar var blásið til átaksins Hlauptu þín leið! þar sem hlaupurum bauðst að hlaupa á eigin vegum og taka þátt í áheitasöfnun.

Silja segir alls kyns teikningar vera uppi á borðunum hjá þeim en getur ekkert tjáð sig um það hvaða útfærslur það eru sem verið er að skoða. Það muni hins vegar koma í ljós von bráðar.

„Draumurinn er náttúrlega að geta haldið maraþonið, af því að söfnunin skiptir svo gríðarlega miklu máli fyrir öll góðgerðafélögin.“

Silja segist þó ekki hafa fundið fyrir miklum áhyggjum hjá þeim hlaupurum sem hafa skráð sig til leiks í ár.

„Ég held bara að fólk sé orðið ansi sjóað í þessu og viti að fólk gefur sér smá tíma til þess að taka ákvarðanir um svona hluti.“

Íþróttabandalag Reykjavíkur mun tilkynna ákvörðun sína á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×