Fundu gosfara í svartaþoku eftir tveggja tíma leit Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 11:58 Björgunarsveitarfólk við störf á gossvæðinu. Svæðið á myndinni er nú komið undir hraun. Vísir/Vilhelm Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út í morgun til leitar að tveimur einstaklingum við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Svartaþoka og rigning var á svæðinu en eftir um tveggja klukkustunda leit fannst fólkið.
Báðir voru heilir á húfi, samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg. Lögreglan á Suðurnesjum minnir á að lífshættulegt er að stíga út á hraunið og þangað eigi aldrei að fara. Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Leið B er opin, hún er lengri (3-4 klst. fram og til baka) og nokkuð erfiðari en leið A með brattari brekku. Hún liggur að gígnum en þar er lítið að sjá eins og er þar sem lítil virkni er í gígnum og frá þessari hlið sést einungis á bakhlið gígsins. Einnig er hægt að ganga inn Nátthaga að hraunflæðinu (leið C). Það er stutt og auðveld leið (1 klst. fram og til baka). Frá Nátthaga má ganga áfram upp á Langahrygg og fá yfirsýn yfir gíg og gosvirkni síðustu mánaða. (1-2 klst. í viðbót) Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gosstöðvunum ef hætta er á gasmengun. Ekki er ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum. Leitum upplýsinga um loftgæði á svæðinu áður en gengið er af stað. Spá veðurvaktar um veður og gasdreifngu í dag og á morgun: Suðvestlæg átt 5-13 m/s. Gasmengun berst einkum til norðausturs og gæti orðið vart við hana á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 10-18 m/s og rigning á morgun og gasmengunin mun fara til norðvesturs. Hægari og suðlægari átt annað kvöld. Bílastæði: Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri. Gönguleiðir: Gönguleiðir A og B eru stikaðar en B leiðin er sýnu erfiðust og lengst og hefur reynst mörgum erfið. Leið C er stutt og auðveld leið. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði. Á safetravel.is eru upplýsingar um stöðuna hverju sinni uppfærðar reglulega yfir daginn. Vakin er athygli á gönguleið að útsýnisstað hefur verið breytt vegna hraunflæðis. Loftmengun: Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina. Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi. Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara: • Frá miðnætti og fram eftir degi eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. • Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. • Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum. • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið. • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi. • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni. • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
Björgunarsveitir Eldgos í Fagradalsfjalli Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira