Innlent

„Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst gaman í málfræðitíma“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Daníel Árni er einn þeirra sem hefur lokið námskeiði í japönsku.
Daníel Árni er einn þeirra sem hefur lokið námskeiði í japönsku. stöð2

Um fimmtíu börn hafa lokið japönskunámskeiði á síðustu vikum. Eitt barnanna segist aldrei hafa skemmt sér jafn vel í málfræðitíma þó tungumálið sé afar erfitt.

Skýið sem er skapandi skóli býður upp á fjölbreytt námskeið. Eitt það allra vinsælasta er japönskunámskeið en um 50 börn hafa lokið námskeiðinu.

„Það er bara búið aðvera ótrúlegt. Maður er búinn að læra svo mikið. Ég var búin að pikka upp nokkra frasa eftir að hafa horft á teiknimyndir en maður er nú búinn að skilja þá betur og læra að skrifa,“ sagði Karen Eva.

Vill eiga sumarbústað í Japan

Áhuginn á japönsku kviknaði hjá þeim öllum eftir að hafa horft á japanskar teiknimyndir.

„Ég hef alltaf horft á anime sem eru japanskar teiknimyndir og mér hefur alltaf langað að læra tungumálið og mér finnst þetta svo gaman og þetta er svo áhugavert,“ sagði Karen Eva.

„Og síðan langar mig að eiga bústað í Japan þannig mér fannst bara gott að læra tungumálið. Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst gaman í málfræðitíma,“ sagði Daníel.

Þau segja japönskuna ansi erfiða en þess virði að læra hana.

Í heildina hafa um fimmtíu börn lokið námskeiðinu.sigurjón ólason

Hvað er það erfiðasta við japönskuna? 

„Það er að vita hvernig maður á að setja orðin saman,“ sagði Vilhjálmur.

„Þetta eru svo flóknir stafir og þetta er ekkert eins og enska eða íslenska eða nein önnur tungumál,“ sagði

Öll vilja þau ferðast til Japans sem allra fyrst.

„Ég ætla einhvern tíman til Japans alveg pottþétt,“ sagði Vilhjálmur

Eins og heyrist í myndbandinu eru þau orðin ansi sleip í japönskunni.

Á námskeiðinu bjuggu þau meðal annars til Onigri sem er japönsk samloka sem er vinsælt nesti í japönskum skólum.

Börnin sögðu samlokuna smakkast vel.Sigurjón ólason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×