Lífið

Tan úr Qu­eer Eye elskar Ís­land: „Fal­legasti staður sem ég hef á ævinni séð“

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
tan queer eye

Tan France úr hinum vinsælu Netflix-þáttum Queer Eye er nú staddur á Íslandi í fríi. Hann hefur verið duglegur að birta myndir úr fríinu á Instagram og er ljóst að hann er hrifinn af náttúrunni:

„Ísland er klárlega fallegasti staður sem ég hef á ævinni séð,“ skrifar Tan við færslu sem hann birti í gær þar sem hann er staddur við Gullfoss.

Ísland er himnaríki á jörðu

Tan er staddur hér ásamt eiginmanni sínum Rob France og virðast þeir hafa komið til landsins fyrir fjórum dögum.

Tan var greinilega heillaður af miðnætursólinni og líkir Íslandi við himnaríki á jörðu í færslu á Instagram. 

Í henni sést hann baða sig í náttúrulaug í íslenskri næturbirtunni.


Tengdar fréttir

Innlit á heimili Tan úr Queer Eye

Á YouTube-rásinni Architectural Digest má reglulega finna myndbönd þar sem þekkt fólk leyfir áhorfendum að kíkja í heimsókn og sjá heimili þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.