Fyrsti leikur Óla Jó með FH og tveir Mjólkurbikarleikir í beinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2021 14:16 Ólafur Jóhannesson hefur unnið bikarinn tvisvar sem þjálfari Vals og einu sinni sem þjálfari FH. vísir/bára Níu leikir í 32 liða úrslitum Mjólkurbikar karla í fótbolta fara fram í kvöld og verða tveir þeirra verða í beinni útsendingu. Pepsi Max deildar slagir Stjörnunnar og KA annars vegar og Keflavíkur og Breiðabliks hins vegar verða sýndir beint á Stöð 2 Sport 4. Þrjú lið voru í gær þau fyrstu til að komast í sextán liða úrslitin en það voru Lengjudeildarlið Þórs frá Akureyri og svo 2. deildarlið Hauka og Völsungs. Pepsi Max deildarliðin eru nú að koma inn í bikarkeppnina og sjö þeirra spila í kvöld. Hin fimm spila síðan annað kvöld. Eitt af þeim sem spila í kvöld er lið FH sem er jafnframt að spila sinn fyrsta leik eftir að Ólafur Jóhannesson tók við liðinu á nýjan leik. FH fær þá Njarðvík í heimsókn en þjálfarinn gestanna er hinn gamalreyndi Bjarni Jóhannsson. Það er líka athyglisverður leikur á milli ÍA, neðsta liðsins í Pepsi Max deildinni, og Fram, efsta liðsins í Lengjudeildinni. Skagamenn hafa aðeins unnið einn af fyrstu níu deildarleikjum sínum en Framarar hafa unnið alla sjö deildarleiki sína. HK tekur síðan á móti Gróttu, sem féll einmitt úr Pepsi Max deildinni síðasta haust. Fjórir leikir hefjast klukkan 18.00 og einn þeirra leikja er viðureign Stjörnunnar og KA í Garðabænum sem er á Stöð 2 Sport 4. Fjórir leikir eru síðan klukkan 19.15 og lokaleikur kvöldsins er síðan viðureign Keflavíkur og Breiðabliks í Keflavík sem hefst klukkan 20.00 og er hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 4. Öll 32 liða úrslitin verða síðan gerð upp í Mjólkurbikarmörkunum annað kvöld en þá verður leikur Vals og Leiknis sýndur beint á undan. Leikir dagsins í Mjólkurbikar karla í fótbolta: Klukkan 18.00 Afturelding-Vestri KFS-Víkingur Ó. ÍR-ÍBV Stjarnan-KA Klukkan 19.15 ÍA-Fram HK - Grótta FH- Njarðvík Augnablik-Fjölnir Klukkan 20.00 Keflavík- Breiðablik Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Mjólkurbikarinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Sjá meira
Pepsi Max deildar slagir Stjörnunnar og KA annars vegar og Keflavíkur og Breiðabliks hins vegar verða sýndir beint á Stöð 2 Sport 4. Þrjú lið voru í gær þau fyrstu til að komast í sextán liða úrslitin en það voru Lengjudeildarlið Þórs frá Akureyri og svo 2. deildarlið Hauka og Völsungs. Pepsi Max deildarliðin eru nú að koma inn í bikarkeppnina og sjö þeirra spila í kvöld. Hin fimm spila síðan annað kvöld. Eitt af þeim sem spila í kvöld er lið FH sem er jafnframt að spila sinn fyrsta leik eftir að Ólafur Jóhannesson tók við liðinu á nýjan leik. FH fær þá Njarðvík í heimsókn en þjálfarinn gestanna er hinn gamalreyndi Bjarni Jóhannsson. Það er líka athyglisverður leikur á milli ÍA, neðsta liðsins í Pepsi Max deildinni, og Fram, efsta liðsins í Lengjudeildinni. Skagamenn hafa aðeins unnið einn af fyrstu níu deildarleikjum sínum en Framarar hafa unnið alla sjö deildarleiki sína. HK tekur síðan á móti Gróttu, sem féll einmitt úr Pepsi Max deildinni síðasta haust. Fjórir leikir hefjast klukkan 18.00 og einn þeirra leikja er viðureign Stjörnunnar og KA í Garðabænum sem er á Stöð 2 Sport 4. Fjórir leikir eru síðan klukkan 19.15 og lokaleikur kvöldsins er síðan viðureign Keflavíkur og Breiðabliks í Keflavík sem hefst klukkan 20.00 og er hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 4. Öll 32 liða úrslitin verða síðan gerð upp í Mjólkurbikarmörkunum annað kvöld en þá verður leikur Vals og Leiknis sýndur beint á undan. Leikir dagsins í Mjólkurbikar karla í fótbolta: Klukkan 18.00 Afturelding-Vestri KFS-Víkingur Ó. ÍR-ÍBV Stjarnan-KA Klukkan 19.15 ÍA-Fram HK - Grótta FH- Njarðvík Augnablik-Fjölnir Klukkan 20.00 Keflavík- Breiðablik Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Leikir dagsins í Mjólkurbikar karla í fótbolta: Klukkan 18.00 Afturelding-Vestri KFS-Víkingur Ó. ÍR-ÍBV Stjarnan-KA Klukkan 19.15 ÍA-Fram HK - Grótta FH- Njarðvík Augnablik-Fjölnir Klukkan 20.00 Keflavík- Breiðablik
Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Mjólkurbikarinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Sjá meira