Kórdrengir í annað sætið Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júní 2021 20:00 Kórdrengir fara upp fyrir Fjölni í annað sætið en þeir síðarnefndu missa ÍBV einnig upp fyrir sig. Vísir/Hulda Margrét Tveir leikir fóru fram fyrri hluta kvölds í Lengjudeild karla í fótbolta. Fjölnir misstu annað sæti deildarinnar í hendur Kórdrengja eftir tap fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum.
Fá stig aðskilja liðin fyrir neðan topplið Fram sem er búið að stinga af með 21 stig. Fjölnismenn voru fyrir umferðina í öðru sætinu með 13 stig, stigi á undan Grindavík, en Kórdrengir voru með 12 og ÍBV 11 stig. Fjölnir heimsótti Vestmannaeyjar í kvöld og mættu liði ÍBV. Þar skoraði Sigurður Grétar Benónýsson eina mark leiksins eftir 18 mínútna leik eftir stoðsendingu Telmo Castanheira. ÍBV vann því 1-0 og komst með sigrinum upp fyrir Fjölni á markatölu. ÍBV fór þó ekki í annað sætið þar sem Kórdrengir, sem voru með stigi meira en þeir fyrir kvöldið, unnu 1-0 sigur á Þór á Akureyri. Þórir Rafn Þórisson skoraði þar sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok. Kórdrengir eru því í öðru sætinu með 15 stig, stigi á undan ÍBV og Fjölni sem eru með 14 stig. Þór er í áttunda sæti með sjö stig.
Lengjudeildin Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Fleiri fréttir „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Sjá meira