Faraldurinn virðist í rénun... í bili Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. júní 2021 07:51 Þátttaka í bólusetningum í Bandaríkjunum er afar mismunandi milli ríkja og svæða. epa/Justin Lane Kórónuveirufaraldurinn virðist nú í rénun víðast hvar í Bandaríkjunum en sérfræðingar eru engu að síður uggandi vegna þess hversu margir hyggjast ekki ætla að þiggja bólusetningu.
Sjö daga meðaltal Covid-19 greininga féll úr 21 þúsund tilfellum 29. maí í 14 þúsund 13. júní, þrátt fyrir að mörg ríki hafi á sama tíma dregið úr sóttvarnaaðgerðum. Tilfellum hefur fjölgað í aðeins átta ríkjum; Alabama, Arkansas, Hawaii, Missouri, Nevada, Texas, Utah og Wyoming. Í öllum ríkjunum, fyrir utan Hawaii, hafa færri íbúar þegið bólusetningu en að meðaltali á landsvísu. Í þeim tíu ríkjum þar sem tilfellum hefur fjölgað minnst eru fleiri fullbólusettir en að meðaltali á landsvísu. Meðal þessara ríkja eru þau þrjú ríki þar sem flestir hafa verið bólusettir; Vermont, Massachusetts og Connecticut. Sérfræðingar segja margt spila inn í fækkun tilfelli, til dæmis aukinn fjölda bólusettra, náttúrulegt ónæmi vegna fyrri sýkinga, heitara veður og sú staðreynd að fólk ver nú auknum tíma utandyra. Þeir segja hins vegar alls óvíst að ástandið breytist ekki í haust eða vetur, ekki síst vegna nýrra afbrigða sem kunna að verða meira smitandi. Þá geti faraldurinn auðveldlega blossað upp meðal þeirra sem ekki hafa verið bólusettir. Í Mississippi hafa til að mynda aðeins 28 prósent íbúa verið bólusett, samanborið við 43 prósent á landsvísu, að meðaltali.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Fleiri fréttir Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Sjá meira