Ólafur Kristjánsson og Freyr Alexandersson eru báðir sérfræðingar Stöðvar 2 Sport á mótinu og þeir mættu í kvöldþátt EM í dag í gærkvöldi.
Freyr Alexandersson valdi Evrópumeistara Portúgals sem sitt lið til að fara alla leið.
„Hann er bæði að velja auðveldu leiðina og svo er hann svolítið óstabíll og sveiflast svolítið. Þú sást hann þurfti að byrja ekki láta mig tala fyrst. Þetta er það sem við eigum eftir að sjá næstu fimm vikurnar,“ skaut Ólafur á Frey.
Ólafur hefur vanalega mikla trú á þýska landsliðinu á stórmóti en það er ekki þannig núna.
„Frakkarnir eru með sterkasta hópinn en eftir að hafa verið með Freysa þá er ég orðinn aðeins meira óstabíll en gott þykir. Ég er orðinn svolítið skotinn í Ítölunum,“ sagði Ólafur.
„Hann þrítryggði sig, ég sagði ykkur það,“ skaut Freyr Alexandersson inn í.
„Frakkarnir eru efstir á lista hjá mér. Það er rútína hjá þeim, það er leikstíllinn þeirra og það eru einstaklingsgæði. Ég held að þeir verði hrikalega öflugir í þessu móti,“ sagði Ólafur.
Það má sjá allt spjallið hér fyrir ofan.
EM í dag verður í dagskrá klukkan 21.00 á EM-stöðinni á öllum leikdögum Evrópukeppninnar en þar munu þau Gummi Ben og Helena gera upp daginn með góðum gestum sem koma víðs vegar að úr þjóðfélaginu. Fyrsti leikur EM er leikur Ítala og Tyrkja klukkan 19.00 í kvöld.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.