Heildarlausnir fyrir vöruhús Áltak ehf 11. júní 2021 13:26 Hillukerfið frá Eab hefur mikla burðargetu og er mjög auðvelt í uppsetningu. Áltak Áltak býður heildarlausnir fyrir vöruhús en fyrirtækið fer meðal annars með umboð sænska fyrirtækisins Eab.
Áltak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingamarkaði og hefur verið það frá stofnun þess árið 1997. Megin áhersla fyrirtækisins hefur í gegnum tíðina verið að veita heildarlausnir í álklæðningum og undirkerfum. Vöruúrval hefur aukist verulega á undanförnum árum og í því sambandi má nefna til dæmis vöruhúsalausnir. Áltak býður heildarlausnir fyrir vöruhús en fyrirtækið fer meðal annars með umboð sænska fyrirtækisins Eab sem hefur sérhæft sig í vöruhúsalausnum og hillukerfum. Bretta- og hillukerfin frá Eab uppfylla evrópska öryggisstaðla og segir Hlynur Magnússon sölumaður hjá Áltaki um gæðavörur að ræða frá rótgrónu fyrirtæki. Allar vöruhúsalausnir Eab eru framleiddar í Smålandsstenar í Svíþjóð. „Eab er fyrirtæki í Svíþjóð sem hefur sérhæft sig í ýmiskonar vöruhúsalausnum og hillukerfum síðan 1957. Allar þeirra vöruhúsalausnir eru framleiddar í þeirra eigin verksmiðju í Smålandsstenar í Svíþjóð,“ segir Hlynur. Milliloft gefa viðbótar gólfpláss og stækka lagersvæðið Hillukerfið frá EAB hefur mikla burðargetu og er mjög auðvelt í uppsetningu og hentar vel bæði í geymsluna heima sem og stór vöruhús. Hillurnar eru sterkar og stöðugar og eru langhliðar hillanna prófílbeygðar sem tryggir mikinn burð og stífingaplötur tryggja stöðugleika gaflanna. Hillurnar er hægt að fá í ýmsum lengdum og dýpt sem gerir það auðveldara fá passandi stærðir í hvert rými. Hillukerfið býður upp á fjölbreytta möguleika. Smávörulager þar sem lofthæðin er nýtt til fulls, hillukerfi á brautum sem festar eru í gólfi og milliloft sem gefa viðbótar gólfpláss og stækka lagersvæðið. Greinarekkar eru mjög hentugir þegar lagerfæra á td: Plötur, timbur og fleira Lausnir fyrir brettavöru „EAB er einnig með ýmsar lausnir varðand brettavöru. Þetta eru hefðbundnir brettarekkar þar sem hægt er að bæta við útdraganlegum hillum, keflarekka ásamt öðru. Greinarekkar eru mjög hentugir þegar lagerfæra á td : plötur, timbur og fleira,“ útskýrir Hlynur. Rekkarnir frá EAB eru eftir stöðluðu kerfi en kerfið býður einnig upp á lausnir svo hægt er að aðlaga kerfið að þörfum hvers viðskiptavinar. „Þannig er hægt að ná hámarksnýtingu á hverju lagerrými,“ segir Hlynur. Hægt er að setja upp svokallaða rúllurekka þegar unnið er með vöru með mikla hreyfingu.Gegnumstreymisrekkar henta einnig þegar vara hefur takmarkaðan líftíma en þá er varan sett inn á annarri hlið rekkans og tekin út á gangstæðri hlið. Þrýstirekkar eru hannaðir svo að fyrsta brettið sem fer inn í rekkann kemur seinast út. Áltak selur einnig hleðslubúnað og iðnaðarhurðir frá Loading Systems Lestun og losun Áltak selur einnig hleðslubúnað og iðnaðarhurðir frá Loading Systems. Loading Systems er Hollenskur framleiðandi og er verksmiðjan staðsett er í Hollandi. „Við höfum sérpantað vörur frá Loading Systems í mörg ár en fyrirtækið er leiðandi á markaðnum í ýmsum lestunarbúnaði ásamt iðnaðarhurðum. Má þar nefna vörulyftur sem standa ýmist fyrir utan bygginguna eða strax fyrir innan hurð. Algengast er að lyftan sé staðsett í sérsmíðuðu hleðsluhúsi sem staðsett er utan við vörumóttöku. þar er komið fyrir hleðslubrú sem getur tekið við ýmsum stærðum vörubifreiða þar sem hún er hæðarstillt með vökvakerfi. svo getum við meðal annars boðið uppblásna veðurhlíf sem lokar fyrir veðri meðan verið er að losa/lesta bílinn,“ útskýrir Hlynur. Vörulyftur frá Loading Systems. Algengast er að vörulyftan sé staðsett í sérsmíðuðu hleðsluhúsi sem staðsett er utan við vörumóttöku. Nánari upplýsingar er að finna á www.altak.is
Skipulag Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira