KR-ingar þurftu að horfa upp á sópinn á lofti í stúkunni á Blue-höllinni í gær en liðið átti fá svör á móti gríðarlega sterku liði deildarmeistara Keflavíkur sem hafa unnið sex fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni.
Þetta var í fyrsta sinn í átján ár sem KR-ingum er sópað í sumarfrí eða síðan Njarðvíkingar gerðu það í átta liða úrslitum 2003. Njarðvíkingar sópuðu KR-liðinu þá í annað skipti á þremur árum eftir að hafa undanúrslitaeinvígi liðanna 3-0 vorið 2001.
Þegar Njarðvík vann báða leikina á móti KR vorið 2003 þá var Teitur Örlygsson í miklu stuði í græna búningnum.
Teitur var með 32 stig og 7 stoðsendingar í 90-87 sigri í fyrri leiknum í DHL-höllinni og var síðan með 19 stig í 97-95 sigri í öðrum leiknum í Njarðvík.
Friðrik Stefánsson var með tvennu í báðum leikjum (12 stig + 13 fráköst og 15 stig + 14 fráköst) en dugði ekki KR-liðinu að Herbert Arnarson skoraði 35 stig og níu þrista í seinni leiknum í Ljónagryfjunni.
Síðan þá var KR-liðið búið að spila 39 seríur í röð í úrslitakeppninni án þess að vera sópað í sumarfrí. Hér fyrir neðan má sjá hvernig tímabilin hafa endað hjá Vesturbæingum á þessari öld.
- Lið sem hafa sent KR-inga í sumarfrí á þessari öld:
- 2021: Keflavík vann 3-0 í undanúrslitum SÓP
- KR Íslandsmeistari 2014-2019
- 2013: Grindavík vann 3-1 í undanúrslitum
- 2012: Þór Þorl. vann 3-1 í undanúrslitum
- KR Íslandsmeistari 2011
- 2010: Snæfell vann 3-2 í undanúrslitum
- KR Íslandsmeistari 2009
- 2008: ÍR vann 2-1 í átta liða úrslitum
- KR Íslandsmeistari 2007
- 2006: Njarðvík vann 3-1 í undanúrslitum
- 2005: Snæfell vann 2-1 í átta liða úrslitum
- 2004: Grindavík vann 2-1 í átta liða úrslitum
- 2003: Njarðvík vann 2-0 í átta liða úrslitum SÓP
- 2002: Njarðvík vann 3-1 í undanúrslitum
- 2001: Njarðvík vann 3-0 í undanúrslitum SÓP
- KR Íslandsmeistari 2000