Íbúar höfnuðu hugmyndum um háhýsi með afgerandi hætti Eiður Þór Árnason skrifar 1. júní 2021 10:33 Gilandi skipulag sem gerir ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum naut mests stuðnings. Akureyrarbær 67% þátttakenda í ráðgefandi íbúðakosningu um aðalskipulag Oddeyrar á Akureyri greiddu atkvæði með gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit.
Mikið hefur verið deilt um uppbyggingu á svæðinu og hafa sumir Akureyringar lagst gegn því að háhýsi verði reist niðri við Oddeyrarbryggju nærri miðbæ Akureyrar. Í öðru sæti kom auglýst breytingatillaga þar sem hús geta verið sex til átta hæðir með 18% atkvæða og því næst málamiðlunartillaga með fimm til sex hæða húsum að hámarki með 14% atkvæða. 1% þátttakenda tóku ekki afstöðu. Verktakafyrirtæki sem fyrirhugaði að reisa sex til átta hæða hús á reitnum hefur gefið út að það muni ekki að taka þátt í uppbyggingu lægri bygginga á svæðinu. Hugmyndir um sex til ellefu hæða hús á Oddeyrinni hafa verið umdeildar.ZEPPELIN ARKITEKTAR Rafrænu kosningunni lauk á miðnætti en alls tóku 3.878 íbúar sveitarfélagsins þátt eða um 26% þeirra sem uppfylltu skilyrði til þátttöku. „Niðurstaðan er bæjarstjórn ráðgefandi, enda var markmiðið fyrst og fremst að kanna vilja íbúa gagnvart uppbyggingu á svæðinu,“ segir á vef Akureyrarbæjar. Lögðu til að háhýsin yrðu lægri til að bregast við gagnrýnisröddum Í október árið 2019 greindi Vísir frá því að bæjarstjórn Akureyrar hafi samþykkt nýja skipulagslýsingu sem lið í því að breyta aðalskipulagi á svæðinu. Með breytingunni yrði verktakafyrirtækinu SS Byggir heimilt að byggja allt að fimm sex til ellefu hæða fjölbýlishús á Oddeyrinni. Í tillögu verktakans var gert ráð fyrir nokkrum misháum húsum; atvinnuhúsnæði á neðstu hæð, garði í miðjunni og gróðursvölum svo dæmi séu tekin. Tillagan reyndist umdeild á meðal bæjarbúa en henni var síðar breytt og gert ráð fyrir allt að sex til átta hæða húsum með verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæðinni. Núgildandi aðalskipulag og rammaskipulag gerir hins vegar aðeins ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á reitnum og því þarf að breyta skipulaginu svo hægt sé að ráðast í uppbygginguna. Svona leit reiturinn út fyrir nokkrum árum.SS BYGGIR/AUÐUNN NÍELSSON Tillagan var kynnt bæjarbúum í maí 2020 og nokkru síðar lagði meirihluti skipulagsráðs til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreyting sem sneri að fyrirhugaðri uppbyggingu yrði auglýst. Í kjölfarið skráðu yfir tvö þúsund manns sig í Facebook-hóp þar sem tillögum um háhýsabyggð á svæðinu var mótmælt. Stofnandi hópsins sagði í samtali við Vísi í september í fyrra að hún telji að húsin eins og þau hafi verið kynnt passi ekki að aðliggjandi byggð auk þess sem að bæjaryfirvöld þyrftu að spyrja íbúa bæjarins formlega um álit þeirra á húsunum. Umræddur reitur væri á áberandi stað og um mikla stefnubreytingu væri að ræða yrði tillagan samþykkt. Yrðu upphaflegar tillögur SS Byggis að veruleika myndu þær breyta bæjarmyndinni töluvert.ZEPPELIN ARKITEKTAR Segjast ætla að bakka út úr verkefninu Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, sagði í samtali við Vísi árið 2019 að það þyrfti að þétta byggð á Akureyri og liður í því væri að byggja á fleiri íbúðir á reitnum. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Akureyri að höldum ekki áfram að þróast í þá átt að við þróumst í átt að Kjarnaskógi og lengra frá allri þjónustu. Það kallar á frekari uppbyggingu skóla og nýjar götur og svo framvegis. Það er bara mikilvægt að nýta innviðina,“ en Helgi bætti við að vinna þyrfti verkefnið í sátt við samfélagið. Í Morgunútvarpinu á Rás 2 nú í apríl lagðist hann gegn íbúakosningu um aðalskipulag á Oddeyrinni og sagði hana vera tilgangslausa. Þá sagði hann að það væri útilokað að SS Byggir kæmi að því að byggja fimm hæða hús á reitnum. „Sá aðili sem færi þarna inn þarf að taka mið af því að þarna eru dýr uppkaup fram undan og dýr grundun að byggja svona undir sjávarmál. Þannig að skipulagið sem Akureyrarbær er að fara með í íbúakosningu, segjum svo að það verði samþykkt, það er ósjálfbært,“ sagði Helgi þann 7. apríl síðastliðinn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Akureyri Skipulag Tengdar fréttir Mótmæla áformum um háhýsi á Oddeyrinni Stofnaður hefur verið hópur í Facebook í þeim tilgangi að mótmæla hugmyndum um uppbyggingu á háhýsum á Oddeyrinni á Akureyri. Um 1,7 þúsund manns hafa skráð sig í hópinn sem stofnaður var síðastliðið föstudagskvöld. 14. september 2020 15:36 Háhýsin á Oddeyrinni verði lægri en fyrstu hugmyndir en hærri en gildandi skipulag heimilar Hámarkshæð fyrirhugaðra bygginga á reit á Oddeyrinni á Akureyri verður sex til átta hæðir nái tillaga að breytingu á aðalskipulagi bæjarins fram að ganga. Fyrri hugmyndir að uppbyggingu á reitnum hafa miðast við allt að fimm sex til ellefu hæða fjölbýlishús 6. maí 2020 20:47 Svona líta hugmyndir að uppbyggingunni á Oddeyrinni út "Svona verkefni í bæ eins og Akureyri. Við þurfum að vinna það í sátt við samfélagið,“ segir Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, um hugmyndir félagsins að byggja allt að ellefu hæða fjölbýlishúsa á Oddeyrinni á Akureyri. 10. október 2019 18:45 Vilja byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á Oddeyrinni Bæjarstórn Akureyrar hefur samþykkt fyrsta skrefið í vinnu sem miðar að því að breyta deiliskipulagi Akureyrar svo heimilt verði að byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á reit á Oddeyrinni. Tillögurnar sem liggja til grundvallar verða kynntar fljótlega á íbúafundi. 3. október 2019 09:45 Mest lesið Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Erlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Fleiri fréttir Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Sjá meira
Mótmæla áformum um háhýsi á Oddeyrinni Stofnaður hefur verið hópur í Facebook í þeim tilgangi að mótmæla hugmyndum um uppbyggingu á háhýsum á Oddeyrinni á Akureyri. Um 1,7 þúsund manns hafa skráð sig í hópinn sem stofnaður var síðastliðið föstudagskvöld. 14. september 2020 15:36
Háhýsin á Oddeyrinni verði lægri en fyrstu hugmyndir en hærri en gildandi skipulag heimilar Hámarkshæð fyrirhugaðra bygginga á reit á Oddeyrinni á Akureyri verður sex til átta hæðir nái tillaga að breytingu á aðalskipulagi bæjarins fram að ganga. Fyrri hugmyndir að uppbyggingu á reitnum hafa miðast við allt að fimm sex til ellefu hæða fjölbýlishús 6. maí 2020 20:47
Svona líta hugmyndir að uppbyggingunni á Oddeyrinni út "Svona verkefni í bæ eins og Akureyri. Við þurfum að vinna það í sátt við samfélagið,“ segir Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, um hugmyndir félagsins að byggja allt að ellefu hæða fjölbýlishúsa á Oddeyrinni á Akureyri. 10. október 2019 18:45
Vilja byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á Oddeyrinni Bæjarstórn Akureyrar hefur samþykkt fyrsta skrefið í vinnu sem miðar að því að breyta deiliskipulagi Akureyrar svo heimilt verði að byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á reit á Oddeyrinni. Tillögurnar sem liggja til grundvallar verða kynntar fljótlega á íbúafundi. 3. október 2019 09:45