Innlent

Hlaupið fyrir landsbyggðardeild Ljóssins

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Miðfell í Hrunamannahreppi þar sem hlaupið fer fram fyrir hádegi laugardaginn 29. maí. Vegalengdirnar sem hægt er að velja á milli eru 3 km, 5 km og 10 km og rennur allur ágóði skráningargjaldsins til Ljóssins, en í skráningarferlinu er einnig boðið upp á frjáls framlög til Ljóssins.
Miðfell í Hrunamannahreppi þar sem hlaupið fer fram fyrir hádegi laugardaginn 29. maí. Vegalengdirnar sem hægt er að velja á milli eru 3 km, 5 km og 10 km og rennur allur ágóði skráningargjaldsins til Ljóssins, en í skráningarferlinu er einnig boðið upp á frjáls framlög til Ljóssins. Aðsend

Það stendur mikið til í Hrunamannahreppi á morgun því um eitt hundrað hlauparar hafa skráð sig í Miðfellshlaupið, sem er hlaup til styrktar landsbyggðardeild Ljóssins. Allir hlauparar enda á Flúðum.

Hlaupið á morgun er er hluti af átakinu „Heilsueflandi samfélag“ í Hrunamannahreppi sem er ætlað að hvetja íbúa sveitarfélagsins til reglulegrar hreyfingar. Erna Magnúsdóttir, sem stofnaði Ljósið, sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, er alin upp í Miðfellshverfinu og því þótti við hæfi að kalla hlaupið "Miðfellshlaupið".

„Fyrst og fremst er verið að vekja athygli á heilsusamlegu líferni og heilsueflandi þáttum eins og að hreyfa sig. Það verður hægt að hlaupa þrjá, fimm eða tíu kílómetra og það er líka hægt að rölta. Það er hlaupið ýmist frá Flúðum að Miðfelli, svo aftur að Flúðum eða byrjað á Miðfelli og hlaupið á Flúðum fimm kílómetra, það enda allir þar. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og áhuga vekjandi verkefni hjá mínum sveitungum,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins og stofnandi þess.

Um 100 hlauparar hafa skráð sig til þátttöku en Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra mun ræsa 5 kílómetra hlaupið.

Erna segir að með hlaupinu sé verið að safna peningum fyrri nýstofnaða landsbyggðardeild Ljóssins.

„Já, við sömdum við Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið í fyrra um tveggja ára tilraunaverkefni þar sem við erum að veita fólki, sem hefur greinst með krabbamein á landsbyggðinni meiri þjónustu. Við erum að veita þeim aðgang að þjónustu Ljóssins í gegnum fjarfundabúnað. Þau hafa getað komið hingað í bæinn til okkar en svo þegar þau þurfa að fara heim aftur höfum við lítið getað fylgt þeim eftir.“

Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, sem er alin upp í Miðfelli í Hrunamannahreppi skammt frá Flúðum.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×