Lífið

Bjóst alveg við þessum erfiðleikum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðmundur fór í aðgerðina í janúar. 
Guðmundur fór í aðgerðina í janúar. 

„Ég fór bara í endurhæfingu,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handaágræðslu í Frakklandi í janúar og hefur verið fjallað um aðgerðina í fjölmiðlum um allan heim. Guðmundur átti afmæli í gær.

„Mér líður bara mjög vel og þetta gengur allt mjög vel eins og er. Núna er ég að fara í gegnum tímabil þar sem allskonar er að koma upp á. Blóðtappi, hendurnar bólgnuðu allar út, ég hafnaði þeim aftur. Þetta er allt gengið til baka að mestu. Höfnunin er ekki sjáanleg lengur. Þetta birtist þannig að ég fæ svona rauð útbrot og þau eru nánast horfin. Blóðtappinn var bara læknaður með blóðþynningu og það þurfi aðeins að skera mig upp. Að öðru leyti líður mér mjög vel og þetta gengur mjög vel.“

Hann segist hafa búist við erfiðleikum af þessum toga.

„Í rauninni gekk þetta svo vel fyrstu mánuðina og þá vorum við búin að undirbúa okkur undir mun meiri vandræði. Það gerðist ekki en í kringum þriggja mánaða tímabilið þá byrjuðu að koma einhver svona leiðindi. Þetta kemur ekki allt í einu en þetta er eitthvað sem er alveg til lausn á. Það fylgir þessu gríðarleg óþægindi sérstaklega þegar handleggirnir bólgnuðu svona. Svo voru þeir svo þungir að ég var alltaf að detta úr axlarlið sem gat verið sárt.“

Hann segir að allt blóðflæði í höndunum hafi alltaf verið gott.

„Vaxtarhraðinn á taugum er um það bil millimetri á dag og það var því reiknað með að eftir ár ætti ég að vera kominn með taugar niður í olnboga og svona tvö ár út í fingur. En ég er bara kominn með taugar út framhandlegg báðum megin núna eftir fjóra mánuði, þannig að þetta er að ganga allt mikið hraðar núna heldur en við áttum von á.“

Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Guðmund Felix sem ræddi við þá Heimi Karlsson og Gulla Helga í Bítinu í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.