Hlaupa til styrktar fólki á landsbyggðinni í krabbameinsmeðferð Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. maí 2021 10:01 Íbúar Hrunamannahrepps safna fyrir góðan málstað. Getty/ Ilan Shacham Sveitafélag Hrunamannahrepps ætlar að setja á laggirnar nýtt hlaup fyrir íbúa sveitafélagsins. Hlaupið í ár verður í tileinkað nýstofnaðri landsbyggðardeild Ljóssins.
Hugmyndasmiðir hlaupsins eru Arnfríður Jóhannsdóttir og Kolbrún Haraldsdóttir. Hlaupið, sem ber heitið Miðfellshlaupið fer fram í lok hreyfiviku UMFI 29. maí næstkomandi og er hluti af átakinu Heilsueflandi samfélag í Hrunamannahreppi sem er ætlað að hvetja íbúa sveitafélagsins til reglulegrar hreyfingar. Hlaupið er tileinkað landsbyggðardeild Ljóssins sem ætluð er fólki sem býr á landsbyggðinni og er í krabbameinsmeðferð eða hefur lokið við krabbameinsmeðferð á undanförnum mánuðum. Auk þess að veita endurhæfingu í stafrænu formi er markmið með stofnun deildarinnar að auka samvinnu við þjónustu og fagaðila í heimabyggð, auka þannig þjónustu við krabbameinsgreinda í heimabyggð. „Hugmyndin kviknaði í vetur með það að markmiði að hvetja fólk til að hreyfa sig meira og njóta alls hins góða sem hlýst af því. Samhliða því langaði okkur að leggja góðu málefni lið og fannst sjálfsagt að styðja við Ljósið enda forstöðukona Ljóssins, Erna Magnúsdóttir alin upp í Miðfellshverfinu. Við vildum leggja sérstaka áherslu á nýstofnaða landsbyggðardeild sem er virkilega þarft fyrir þá sem ekki geta sótt endurhæfingu í Reykjavík en þjónustan fer að miklu leyti fram rafrænt.“ segir Arnfríður Jóhannsdóttir. Hugmyndasmiðir hlaupsins eru Arnfríður Jóhannsdóttir og Kolbrún Haraldsdóttir.Aðsent Mismunandi vegalengdir fyrir góðan málstað Vegalengdirnar sem hægt er að velja á milli eru 3 km, 5 km og 10 km og rennur allur ágóði skráningargjaldsins til Ljóssins, en í skráningarferlinu er einnig boðið upp á frjáls framlög til Ljóssins. „Við erum virkilega þakklát sveitafélagi Hrunamannahrepps fyrir þetta fallega framtak og ég sjálf ótrúlega snortin að þau vilji styðja við Ljósið í þessu fyrsta Miðfellshlaupi. Við ætlum auðvitað að koma og hvetja fólk áfram og gera Ljósið sýnilegt,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins. Nánari upplýsingar um hlaupið er á Facebooksíðu viðburðarins hér.
Hlaup Heilbrigðismál Hrunamannahreppur Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið