Með 30-20-10 þrennu í úrslitakeppni 1. deildar karla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2021 20:32 Jose Medina Aldana náði magnaðri þrennu í gærkvöldi. Fésbókin/Hamar Körfubolti Spænski körfuboltamaðurinn Jose Medina Aldana átti stórleik þegar Hamar komst í 1-0 í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í gær.
Hamar vann þá 105-101 sigur á Selfossi í framlengdum leik þar sem umræddur Aldana var með 30-20-10 þrennu. Spænski leikstjórnandinn skoraði 33 stig, gaf 20 stoðsendingar og tók 10 fráköst. Hann skilaði alls 40 framlagsstigum til Hamarsliðsins í leiknum. Aldana sem heldur upp á 28 ára afmælið sitt er á sínu fyrsta tímabili í Hveragerði en hann kom til Hamars frá þýska liðinu Münster. Aldana var með 23,5 stig, 10,8 stoðsendingar og 6,2 fráköst að meðaltali í deildarkeppninni en var með 21,5 stig og 6,5 stoðsendingar í leik í átta liða úrslitunum á móti Hrunamönnum þar sem hann þurfti bara að spila 20 mínútur að meðaltali. Aldana hefur nokkrum sinnum verið nálægt þrennu í 1. deildinni í vetur en þetta er í fyrsta sinn sem hún er í húsi hjá honum. Ruud Lutterman (22 stig og 12 fráköst), Ragnar Jósef Ragnarsson (20 stig) og Pálmi Geir Jónsson (18 stig) nutu góðs af sendingum Aldana en Spánverjinn átti beinan þátt í 31 af 40 körfum Hamarsliðsins í leiknum. Hamar er að reyna að komast upp í Domino´s deildina þar sem félagið hefur ekki verið síðan vorið 2011 eða í heilan áratug. Hamar og Vestri eru bæði 1-0 yfir í undanúrslitaeinvígum sínum en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslitaeinvígið. Þar verður síðan spilað um laust sæti í Domino´s deildinni á næsta tímabili. Vestramenn unnu 81-55 sigur á Skallagrími á Ísafirði þar sem Ken-Jah Bosley skoraði 34 stig og Nemanja Knezevic var með 21 frákast og 12 stig.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Younghoe sparkað burt Sport Svíar vinna Ólympíubronsið 2010: „Fáránlegt að þetta hafi tekið svona langan tíma“ Sport Þrjú rauð spjöld á Sauðárkróki: Tindastóll fer á Laugardalsvöll Fótbolti Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Handbolti Kristian skoraði og lagði upp í stórsigri gegn fyrrum félögum Fótbolti Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals Handbolti Valur sótti nauman sigur norður Handbolti Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Handbolti Fleiri fréttir Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Sjá meira