Innlent

Tveir greindust á Suðurlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Rumlega 6.500 manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.
Rumlega 6.500 manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Báðir sem greindust voru í sóttkví.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í samtali við fréttastofu að báðir þeir sem greindust hafi greinst á Suðurlandi. 

63 eru nú í einangrun, sami fjöldi og á föstudaginn. 165 eru nú í sóttkví, en voru 330 á föstudag. 1.361 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fjórir nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og á föstudag.

Tvö smit greindust á landamærum í gær – eitt virkt smit í fyrri landamæraskimun, en beðið er mótefnamælingar í hinu tilvikinu.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 13,6, en var 13,9 á föstudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 3,5, en var 3,0 á föstudag.

6.548 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru 29 látin.

65.011 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 82.581 til viðbótar.

Alls voru tekin 392 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 837 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 436 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

24 þúsund bólu­settir í vikunni

Um 24 þúsund einstaklingar verða bólusettir hér á landi í vikunni. Notast verður við öll fjögur bóluefnin – það er AstraZeneca, Pfizer, Moderna og Janssen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×