Rúnar getur nú stillt upp sömu framlínu og síðast þegar KR vann tvöfalt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2021 14:00 Gamla bandið hvað? vísir/getty/hulda margrét/vilhelm Eftir komu Kjartans Henrys Finnbogasonar getur KR nú stillt upp sömu framlínu og þegar liðið varð síðast tvöfaldur meistari fyrir áratug. Þeir Kjartan, Guðjón Baldvinsson og Óskar Örn Hauksson voru fyrstu kostir Rúnars Kristinssonar í framlínu KR fyrri hluta tímabilsins 2011, eða allt þar til Óskar meiddist um mitt sumar. Kjartan og Guðjón eru nú komnir aftur í KR eftir mislanga fjarveru en Óskar hefur ekki farið neitt. Rúnar gæti því stillt upp sömu framlínu og þegar KR-ingar unnu bæði deild og bikar fyrir áratug. KR 2011 er síðasta íslenska liðið sem vann tvöfalt. Kjartan var markahæsti leikmaður KR í Pepsi-deildinni 2011 með tólf mörk. Guðjón kom næstur með átta mörk. Óskar skoraði svo þrjú mörk í þeim ellefu leikjum sem hann spilaði áður en hann meiddist. Fyrir utan Kjartan, Guðjón og Óskar er Aron Bjarki Jósepsson sá eini úr meistaraliðinu 2011 sem er í leikmannahópi KR í dag. Þá er Rúnar Kristinsson þjálfari KR eins og hann var fyrir áratug. Óskar og Guðjón eru báðir komnir á blað á þessu tímabili. Óskar skoraði í 0-2 sigri KR á Breiðabliki í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar og Guðjón gerði mark KR-inga í 1-3 tapinu fyrir KA-mönnum í 2. umferðinni. Kjartan gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir KR síðan 2014 þegar liðið fær Val í heimsókn í stórleik 4. umferðar á mánudaginn. KR sækir Fylki heim í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:45. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Pepsi Max-deild karla KR Tengdar fréttir KR staðfestir komu Kjartans Henrys Kjartan Henry Finnbogason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR. Hann snýr því aftur til uppeldisfélagsins sem hann lék síðast með 2014. 12. maí 2021 09:17 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira
Þeir Kjartan, Guðjón Baldvinsson og Óskar Örn Hauksson voru fyrstu kostir Rúnars Kristinssonar í framlínu KR fyrri hluta tímabilsins 2011, eða allt þar til Óskar meiddist um mitt sumar. Kjartan og Guðjón eru nú komnir aftur í KR eftir mislanga fjarveru en Óskar hefur ekki farið neitt. Rúnar gæti því stillt upp sömu framlínu og þegar KR-ingar unnu bæði deild og bikar fyrir áratug. KR 2011 er síðasta íslenska liðið sem vann tvöfalt. Kjartan var markahæsti leikmaður KR í Pepsi-deildinni 2011 með tólf mörk. Guðjón kom næstur með átta mörk. Óskar skoraði svo þrjú mörk í þeim ellefu leikjum sem hann spilaði áður en hann meiddist. Fyrir utan Kjartan, Guðjón og Óskar er Aron Bjarki Jósepsson sá eini úr meistaraliðinu 2011 sem er í leikmannahópi KR í dag. Þá er Rúnar Kristinsson þjálfari KR eins og hann var fyrir áratug. Óskar og Guðjón eru báðir komnir á blað á þessu tímabili. Óskar skoraði í 0-2 sigri KR á Breiðabliki í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar og Guðjón gerði mark KR-inga í 1-3 tapinu fyrir KA-mönnum í 2. umferðinni. Kjartan gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir KR síðan 2014 þegar liðið fær Val í heimsókn í stórleik 4. umferðar á mánudaginn. KR sækir Fylki heim í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:45. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild karla KR Tengdar fréttir KR staðfestir komu Kjartans Henrys Kjartan Henry Finnbogason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR. Hann snýr því aftur til uppeldisfélagsins sem hann lék síðast með 2014. 12. maí 2021 09:17 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira
KR staðfestir komu Kjartans Henrys Kjartan Henry Finnbogason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR. Hann snýr því aftur til uppeldisfélagsins sem hann lék síðast með 2014. 12. maí 2021 09:17