Messi, Ramos og stjörnurnar sem verða samningslausar í sumar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. maí 2021 12:01 Lionel Messi, Gianluigi Donnarumma, Sergio Agüero og Sergio Ramos gætu allir verið frítt frá sínum félögum í sumar. vísir/getty Óvenju margar stórstjörnur verða samningslausar í sumar. Þeirra á meðal eru fyrirliðar Barcelona og Real Madrid, Lionel Messi og Sergio Ramos.
Daily Mail tók saman lista yfir tíu feitustu bitana sem verða með lausan samning í sumar og geta því farið frítt frá sínum liðum. Messi er að sjálfsögðu á toppi listans. Argentínumaðurinn óskaði eftir því að fara frá Barcelona síðasta sumar og hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við félagið. Barcelona á í miklum fjárhagskröggum en Joan Laporta, nýr forseti félagsins, gæti þó sannfært Messi um að halda kyrru fyrir. Messi hefur aðallega verið orðaður við Paris Saint-Germain og Manchester City þar sem hann myndi hitta fyrir sinn gamla knattspyrnustjóra hjá Barcelona, Pep Guardiola. Einn besti vinur Messis, Sergio Agüero, verður einnig samningslaus í sumar en nýverið greindi City frá því að hann yrði ekki áfram hjá félaginu. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Barcelona og Chelsea. Ramos hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Real Madrid, félagið sem hann hefur leikið með síðan 2005. Ramos vill fá tveggja ára samning en Real Madrid er bara tilbúið að bjóða honum eins árs samning. Hann hefur aðallega verið orðaður við PSG. Hollensku landsliðsmennirnir Memphis Depay og Georginio Wijnaldum verða lausir allra mála hjá Lyon og Liverpool í sumar. Barcelona hefur augastað á þeim báðum. Edinson Cavani, sem hefur leikið frábærlega með Manchester United á undanförnum vikum, verður samningslaus í sumar en United vill fyrir alla muni halda Úrúgvæanum. Þá getur markvörður AC Milan, Gianluigi Donnarumma, farið frítt frá félaginu í sumar. Juventus rennir hýru auga til ítalska landsliðsmarkvarðarins.
Fótbolti Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fleiri fréttir Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Sjá meira