Innlent

Íslendingar gefa Indverjum öndunarvélar

Snorri Másson skrifar
visir/vilhelm

Í ljósi alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi hafa þarlend stjórnvöld þegið boð íslenskra stjórnvalda um að senda 17 öndunarvélar til Indlands, segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Öndunarvélarnar eru gjöf frá Landspítala og verða þær fluttar, með milligöngu heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, á vegum almannavarna Evrópusambandsins sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samstarfsins.

Gert er ráð fyrir að vélarnar verði sendar á næstu dögum.

Enginn er á gjörgæslu á Íslandi vegna Covid-19 þessa stundina en frá upphafi hafa samtals 54 þurft gjörgæslumeðferð. 29 eru látnir eftir að hafa greinst með Covid-19 hér á landi.

Ekki þörf fyrir búnaðinn hér

400.000 ný smit greindust á Indlandi í dag, sem er metfjöldi. Það er sambærilegt um 115 nýjum smitum á einum degi hér í landi en þá er ekki tekið tillit til þess að skimunum er töluvert ábótavant á Indlandi. Samtals hafa 22 milljónir smita greinst.

„Þessar öndunarvélar eru hluti af stórri gjöf sem Landspítala fékk í fyrra frá rausnarlegu velvildarfólki spítalans. Þá var algjör óvissa um þörfina hér á landi fyrir öndunarvélar, en hún var metin mikil þá og vélarnar virkilega vel þegnar.

Nú er ljóst að ekki er þörf fyrir allar öndunarvélarnar sem Landspítali hlaut að gjöf og því taldi spítalinn rétt að þær nýttust fólki í neyð annars staðar. Landspítali heldur eftir þeim vélum sem talið er nauðsynlegt til að tryggja öryggi landsins,“ segir í tilkynningu stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×