Innlent

Tveir greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 6.500 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa um 6.500 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Báðir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

139 eru nú í einangrun, en voru 173 í gær. 261 eru nú í sóttkví, en voru 329 í gær. 1.159 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fimm nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.

Ekkert smit greindist á landamærum í gær. 

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 29,7, en var 33,8 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 3,0 líkt og í gær.

50.192 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 73.822 til viðbótar.

6.500 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.

Alls voru tekin 798 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 348 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 443 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×