Real Madrid kláraði sitt og spennan magnast í toppbaráttunni á Spáni 1. maí 2021 20:54 Karim Benzema. AP/Manu Fernandez) Real Madrid vann mikilvægan 2-0 sigur þegar Osasuna mætti í heimsókn í kvöld. Madrídingar eru nú í öðru sæti, tveim stigum á eftir nágrönnum sínum í Atletico Madrid. Real Madrid þurfti á sigri að halda til að halda í við nágranna sína í baráttunni um spænska meistaratitilinn. Real Madrid átti í miklum erfiðleikum með að brjóta Osasuna niður og markalaust var þegar flautað var til hálfleiks. Madrídingar stjórnuðu leiknum og það skilaði sér loksins þegar um korter var til leiksloka. Á 76.mínútu kom Eder Militao boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Isco. Aðeins fjórum mínútum seinna tryggði Casemiro heimamönnum 2-0 sigur eftir stoðsendingu frá Karim Benzema. Real Madrid heldur því pressunni á nágrönnum sínum og eru enn tveim stigum á eftir Atletico Madrid í öðru sæti. Barcelona fylgir fast á hæla þeirra í þriðja sæti, þrem stigum á eftir Real Madrid og eiga leik til góða. Spænski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti