Maðurinn á bak við Bat Out of Hell og Total Eclipse of the Heart látinn Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. apríl 2021 10:30 Jim Steinman var fæddur í New York, 1,nóvember árið 1947. Hann lést 19. apríl, 73 að aldri. Getty/ Terry Lott Popp- og rokklagahöfundurinn Jim Steinman er látinn, 73 ára að aldri. Steinman samdi ógleymanleg lög eins og Bat Out of Hell og Total Eclipse of the Heart. Tilkynning um andlátið var birt á Facebook síðu lagahöfundarins litríka.
Fljúgðu Jimmy fljúgðu Bróðir hans staðfesti einnig andlátið í samtali við AP og sagði að hann hafi látist vegna nýrnabilunar eftir að hafa verið veikur í einhvern tíma. Grammy verðlaunahafinn fékk heilablóðfall fyrir fjórum árum og hrakaði heilsunni mikið eftir það. „Ég sakna hans mikið nú þegar,“ er haft eftir honum. Steinman var vígður inn í Frægðarhöll lagahöfunda (Songwriters Hall of Fame) árið 2012. Lagahöfundurinn litríki var tekinn inn í Frægðarhöll lagahöfunda árið 2012 ásamt Meat Loaf.Getty/Larry Busacca Hann var hvað þekktastur fyrir samstarf sitt við Meat Loaf. Í viðtali við People árið 2016 lofsöng hann Steinman og kallaði hann „einn besta lagahöfund allra tíma.“ Söngvarinn kvaddi Steinman á Facebook með fallegum myndum og skrifaði einfaldlega „fljúgðu Jimmy fljúgðu.“ Total eclipse of the heart í uppáhaldi Steinman samdi mörg af sínum stærstu lögum fyrir Meat Loaf en platan Bat Out of Hell sem kom út árið 1977 varð ein stærsta plata allra tíma. Rokkóperustíllinn sló í gegn og var gerður söngleikur upp úr plötunni árið 2017. Söngleikurinn var frumsýndur í óperuhúsinu í Manchester en Steinman átti öll lögin í þeirri uppsetningu. Söngleikurinn fór á tónleikaherferð um heiminn. Lögin hafa einnig verið flutt á sviði hér á landi. Árið 2014 var tónlistarhúsinu Hörpu breytt í leðurblökuhelli og lög Steinman flutt af mörgum af bestu rokksöngvörum landsins. Titillag plötunnar Bat Out of Hell telja margir vera eitt besta lag allra tíma og lög eins og You Took The Words Right Out of My Mouth og Two Out of Three Ain‘t Bad hlutu einnig miklar vinsældir. Steinmen samdi einnig lög eins og Holding Out for a Hero með Bonny Tyler, Barry Manilow lagið Read 'Em and Weep, Making Love Out of Nothing at All með Air Supply og Dead Ringer For Love sem var gefið út sem dúett Cher og Meat Loaf. Samkvæmt frétt BBC sagði Steinman sjálfur að besta lagið hans væri Bonny Tyler lagið Total Eclipse of the Heart „Stærsta karókí lag allra tíma.“ Lagið hefur verið spilað meira en 788 milljón sinnum á Youtube þegar þetta er skrifað. Tónlistarsnillingur Árið 1983 voru lögin Total Eclipse of the Heart og Making Love Out of Nothing at All í fyrsta og öðru sæti Billboard Hot 100 listans þrjár vikur í röð. Steinman vann Grammy verðlaun fyrir plötu ársins fyrir vinnu sína með Celine Dion á plötunni Falling Into You. Samdi hann meðal annars lagið It's All Coming Back to Me Now. Söngkonan birti færslu á Twitter og vottaði þar fjölskyldu og vinum hans samúð. „Hann var tónlistarsnillingur, ótrúlegur framleiðandi og lagahöfundur. Að vinna með honum er einn mesti heiður minn á ferlinum.“ pic.twitter.com/OOWKSs9YsK— Celine Dion (@celinedion) April 21, 2021 Hér fyrir neðan má heyra nokkur af þekktustu lögum Jim Steinman.
Andlát Bandaríkin Tónlist Tengdar fréttir Seldist upp í Hofi á tíu mínútum Miðasala á tónleikasýninguna Bat out of Hell hófst með látum í dag. 14. ágúst 2014 13:02 Breyta Eldborg í leðurblökuhelli Matthías Matthíasson segir að búið sé að kalla til alla þá söngvara sem ráða við að syngja lög hljómsveitarinnar Meatloaf af plötu þeirra Bat out of Hell. 31. mars 2014 09:30 Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira
Seldist upp í Hofi á tíu mínútum Miðasala á tónleikasýninguna Bat out of Hell hófst með látum í dag. 14. ágúst 2014 13:02
Breyta Eldborg í leðurblökuhelli Matthías Matthíasson segir að búið sé að kalla til alla þá söngvara sem ráða við að syngja lög hljómsveitarinnar Meatloaf af plötu þeirra Bat out of Hell. 31. mars 2014 09:30