Um er að ræða 214,3 fermetra hús sem byggt var árið 1972. Húsið stendur innst í botnlanga og er því lýst sem einstöku hvað varðar byggingarstíl, byggingarefni og alla hönnun. Fasteignamat eignarinnar er 86,3 milljónir en óskað er eftir tilboði.
Í svefnherbergi hússins er að finna stuðlabergsrúm með heilum stuðlabergssúlum og steinteppi sem sérvalið var úr Stokknesfjöru við Hornafjörð. Steyptir krossgluggar eru í herberginu ásamt breiðum sjónsteypuvegg.
Stuðlabergið spilar einnig stórt hlutverk á öðrum stöðum í húsinu, en slíkar flísar eru á gólfi í anddyri, gestabaðherbergi og stofu. Sérhannaður arinn er í stofunni, þaðan sem gengið er út á pall þar sem er að finna LED lýstan brunn.
Sjón er sögu ríkari og má sjá fleiri myndir af húsinu hér.