Lífið

Páll Óskar deilir sjálfur nektar­­myndum af sér sem voru í dreifingu í hans ó­­þökk

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Páll Óskar Hjálmtýsson.
Páll Óskar Hjálmtýsson. Vísir/Vilhelm

Söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson deilir á Facebook í dag myndum af sér sem hann segir að óprúttinn aðili hafi verið að deila áfram án hans samþykkis. Myndirnar hafi hann sent viðkomandi í trúnaði í gegnum stefnumótaforritið Grindr en nú sé viðkomandi að „dreifa þeim út um allt.“

Páll Óskar vekur á sama tíma athygli á því að slík dreifing mynda í óleyfi stangist á við lög um kynferðislega friðhelgi.

„Já, gott fólk. Svona lít ég út. Fávitinn, sem ég sendi þessar myndir í trúnaði á Grindr og er nú að dreifa þeim út um allt - til að fá mig til að skammast mín fyrir að hafa líkama og lifa kynlífi - er rúmlega 30 árum of seinn! Njótið vel,“ skrifar Palli á Facebook nú fyrir stundu.

„Þar að auki varðar ósamþykkt dreifing á persónulegum myndum við lög, sem voru samþykkt á Alþingi nú 17. Feb 2021,“ bætir hann við.

Lögin sem Páll Óskar vísar til voru samþykkt á Alþingi í febrúar en þeim er ætlað að taka á stafrænu kynferðisofbeldi. Sá sem dreifir í heimildarleysi kynferðislegri mynd, eða mynd sem felur í sér nekt, getur nú átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi samkvæmt lögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.