„Dagarnir á Ítalíu hafa gengið mjög vel. Það er spennandi að fá nýjan þjálfara, þó að einhverjar okkar þekki hann mjög vel,“ sagði Karólína á fundinum í dag. „Það vilja allir sýna sig og þetta er búið að vera mjög skemmtilegt.“
Sara Björk og Dagný Brynjarsdóttir verða ekki með í leikjunum, en Karólína hefur ekki áhyggjur af sér og liðsfélögum sínum.
„Það er erfitt að missa svona reynslumikla leikmenn, en ég hef engar áhyggjur af okkur. Það eru bara aðrir leikmenn sem stíga upp og axla meiri ábyrgð. Þetta er bara tækifæri fyrir okkur hinar.“
Karólína þekkir nýráðinn þjálfara landsliðsins vel, en hann var þjálfari Breiðablik áður, þar sem Karólína spilaði.
„Ég er búinn að sakna hans mikið,“ sagði Karólína og hló. „Það er búið að vera mjög skemmtilegt að heyra aftur í þessum góðu þjálfurum sem maður var orðinn vanur.“
„Það er ekkert verið að slaka á hjá Steina. Hann er með frábærar áherslur og nú er það bara að fylgja þeim eftir og ná í góð úrslit á móti Ítalíu og byggja svo ofan á það.“
Krefjandi en lærdómsrík byrjun hjá Bayern
„Það er búið að vera rosalega lærdómsríkt og skemmtilegt, en líka mjög krefjandi. Ég er að búa ein í fyrsta skipti, nýtt tungumál, nýjar stelpur og nýtt lið. Þetta er búið að vera krefjandi en ég er búinn að læra rosalega mikið á þessu. Það verður skemmtilegt að sjá hvað gerist í framtíðinni, ég þarf bara að vera þolinmóð.“
„Það er alltaf verið að kenna manni eitthvað nýtt. Ég hef aðallega verið að bæta styrktarþáttinn, það er verið að reyna að gera mig að einhverri þýskri vél hérna úti. Maður er með heimavinnu hérna á Ítalíu frá gymminu. Auðvitað er mikið af fótboltalegum þáttum sem ég hef verið að reyna að tileinka mér. Ég á margt eftir ólært, Þjóðverjarnir ætla að kenna mér mikið, ég er búinn að sjá það.“