Auðveldari gönguleið stikuð að gosinu framhjá kaðlinum Kristján Már Unnarsson skrifar 7. apríl 2021 23:37 Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður í Grindavík. Arnar Halldórsson Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt.
Hér má sjá hvernig gígarnir röðuðu sér eftir gossprungunni í dag. Næst til hægri er nyrsti gígurinn, þar sem sprungan opnaðist á annan í páskum. Í miðið er gígur sem opnaðist síðastliðna nótt. Fjær sjást svo elstu gígarnir í Geldingadölum.Arnar Halldórsson „Við bættum við endann á gönguleiðinni. Núna liggur hún frá sama upphafsstað og alveg að nýjustu gosstöðunum,“ sagði Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður frá Þorbirni í Grindavík, í viðtali í fréttum Stöðvar 2. -En þið sneiðið framhjá kaðlinum? „Já, við náum að sneiða framhjá kaðlinum. Við breyttum henni örlítið þannig að núna liggur hún svona 50 til 70 metra til austurs. Þannig að núna fer hún svona sneiðing upp hlíðina en fer ekki í kaðalinn sjálfan.“ Nyrsti gígurinn var orðinn glæsilegur í dag. Hraunið frá honum rennur niður í Meradali.Arnar Halldórsson -Er þetta þá auðveldari leið en kaðalleiðin? „Já, miklu auðveldari. Nú er allavega hægt að labba alla leið frá upphafi gönguleiðar og alveg upp að gosstöð án þess að þurfa að grípa í kaðal. Vissulega er verið að fara upp á fjall en það er miklu einfaldara,“ sagði Otti. Gísli Páll Pálsson, björgunarsveitarmaður úr Hveragerði og forstjóri Grundarheimilanna.Arnar Halldórsson Meðal björgunarsveitarmanna í vörslu á upphafsstað gönguleiðarinnar við Suðurstrandarveg í dag var Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna. „Við erum að vakta hérna svæðið. Ég er fyrir Hjálparsveit skáta í Hveragerði. Við erum bara að taka þátt í þessu verkefni. Þetta gefur okkur smápeninga í fjáröflun fyrir félagið. Og félagar okkar í sveitinni fá líka hluta af þessum tekjum í búnaðarkaup. Þannig að ég er bara í því að styrkja sveitina fyrir mig og mína félaga.“ Gísli Páll sagði langflesta ferðamenn vel búna. Þeir höfðu þó afskipti af tveimur í morgun sem voru illa búnir en fóru samt. Þeir skiluðu sér þó heilir á húfi til baka. Stefanía Ósk Ágústsdóttir að lokinni gosgöngu í dag.Arnar Halldórsson Framan af degi fóru fáir að gosstöðvunum. Þeim fjölgaði hins vegar eftir því sem leið á daginn og síðdegis máttu sjá um eitthundrað bíla á stæðum við Suðurstrandarveg. Meðal þeirra sem gengu að gosstöðvunum í dag voru þau Stefanía Ósk Ágústsdóttir og Pálmar Helgi Tómasson flugmaður. Pálmar Helgi Tómasson flugmaður hafði áður séð eldgos úr lofti en upplifði það í fyrsta sinn í dag að koma að því landleiðina fótgangandi.Arnar Halldórsson „Þetta var bara geggjað. Þetta var ógeðslega flott. Tókum með okkur smábita heim, hraunbita,“ sagði Stefanía. „Þetta var styttra en ég bjóst við, miðað við það sem ég hafði ímyndað mér,“ sagði Pálmar en þau sögðust hafa verið rúma þrjá tíma á göngunni, fram og til baka. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Grindavík Tengdar fréttir Framleiðni eldgossins tvöfaldast með nýju sprungunni Nýja gossprungan sem opnaðist í Meradölum í gær er í raun viðbót við gosið í Geldingadölum sem hefur þannig tvöfaldað framleiðslu sína. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir vel hugsanlegt að önnur gossprunga gæti opnast. 6. apríl 2021 20:00 Búið að lagfæra bröttu brekkuna þar sem margir hafa örmagnast Yfirlögregluþjónn segir að margir hafi örmagnast við bratta brekku sem fólk hefur þurft að ganga til að komast að gosstöðvunum. Lagfæringar hafi verið gerðar á leiðinni til að auðvelda yfirferð. Lokað er á gosstöðvunum í dag og til hádegis á morgun vegna veðurs. 3. apríl 2021 11:10 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira
Framleiðni eldgossins tvöfaldast með nýju sprungunni Nýja gossprungan sem opnaðist í Meradölum í gær er í raun viðbót við gosið í Geldingadölum sem hefur þannig tvöfaldað framleiðslu sína. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir vel hugsanlegt að önnur gossprunga gæti opnast. 6. apríl 2021 20:00
Búið að lagfæra bröttu brekkuna þar sem margir hafa örmagnast Yfirlögregluþjónn segir að margir hafi örmagnast við bratta brekku sem fólk hefur þurft að ganga til að komast að gosstöðvunum. Lagfæringar hafi verið gerðar á leiðinni til að auðvelda yfirferð. Lokað er á gosstöðvunum í dag og til hádegis á morgun vegna veðurs. 3. apríl 2021 11:10