Innlent

Sér­reglur fyrir á­kveðna hópa erfiðar í fram­kvæmd

Kjartan Kjartansson skrifar
Sundlaugar hafa verið lokaðar frá því að sóttvarnareglur voru hertar 25. mars. Eldri borgarar eru á meðal tryggustu gesta baðstaða á landinu.
Sundlaugar hafa verið lokaðar frá því að sóttvarnareglur voru hertar 25. mars. Eldri borgarar eru á meðal tryggustu gesta baðstaða á landinu. Vísir/Vilhelm

Ekki hefur verið skoðað sérstaklega að slaka á sóttvarnareglum fyrir fólk sem hefur verið bólusett gegn kórónuveirunni, að sögn sóttvarnalæknis. Hann telur að sérreglur fyrir bólusetta eða þá sem hafa fengið Covid-19 erfiðar í framkvæmd og eftirliti.

Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, lýsti því sem góðri hugmynd að hleypa eldri borgunum í sund nú þegar flestir yfir sjötugu hafi fengið að minnsta kosti fyrri skammt af bóluefni gegn veirunni. Sundstaðir hafa verið lokaðir frá því að sóttvarnaaðgerðir voru hertar í mars.

Það gæti þó verið afar erfitt í framkvæmd að slaka á sóttvarnareglum fyrir tiltekinn hóp eins og bólusetta eldri borgara að mati Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis. Í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni sagði hann að slíkt hefði verið reynt erlendis og yfirvöld hafi lent í vandræðum þar.

„Ég er ekki endilega viss um að á þessu stigi munum við fara út í það. Við höfum reynt að vera með almennar reglur og ekki verið að undanskilja þá sem eru bólusettir eða fengið Covid neitt sérstaklega. Það gæti verið mjög erfitt í framkvæmd og yrði mjög erfitt að hafa eftirlit með því,“ sagði Þórólfur.

Þá sagði hann ekki hægt að gefa það út nákvæmlega við hvaða mörk yrði hægt að aflétta hinum eða þessum sóttvarnaaðgerðum. Þegar góðri útbreiðslu bólusetninga væri náð, um 50% þjóðarinnar, ætti að vera hægt að byrja að slaka á en ýmsu væru þó enn ósvarað um faraldurinn sjálfan og bólusetningar, þar á meðal um hvernig mismunandi afbrigði veirunnar hegða sér og hvort bólusettir geti borið smit á milli fólks.

Sóttvarnalæknir sér fyrir sér að þróunin verði hæg fram á sumarið en ef bólusetningar ganga vel áfram hilli undir að hægt verði að slaka á takmörkunum.

„Við verðum að vera viðbúin alls konar uppákomum í þessu,“ sagði hann.

Hægt er að hlusta á viðtalið við sóttvarnalækni í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×