Innlent

Fjórir greindust með veiruna innanlands

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Covid-sýnataka í húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut.
Covid-sýnataka í húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut. Vísir/Vilhelm

Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru allir í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. Fimm greindust á landamærum, þar af greindust fjórir með virk smit í seinni skimun en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar hjá þeim fimmta.

123 eru nú í einangrun með Covid-19 á landinu og fækkar um einn síðan tölur voru síðast birtar fyrir páska. Enginn er nú á sjúkrahúsi vegna Covid en var einn fyrir páska. Þá eru 139 í sóttkví en voru 174 fyrir páska. 802 eru í skimunarsóttkví.

Talsvert fleiri sýni voru tekin í gær en dagana á undan eða rétt tæplega 1.500, þar af 432 landamærasýni.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smita síðustu fjórtán daga á hverja 100 þúsund íbúa, er 24,0 en var áður 22,9. Nýgengi landamærasmita lækkar talsvert síðan fyrir páska; var 10,6 en er nú 7,9.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×