Innlent

Flestir sýni stöðunni skilning en útgöngubann reynist mörgum þung­bært

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Fosshótel Reykjavík er notað sem sóttkvíarhótel.
Fosshótel Reykjavík er notað sem sóttkvíarhótel. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Tvö hundruð og tuttugu manns dvöldu á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún í nótt. Í morgun bættist einn gestur við á hótelinu, en sá hafði komið frá skilgreindu hááhættusvæði í gegn um London. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins segir flesta gesti sýna stöðunni skilning.

Gunnlaugur Bragi Björnsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir erfitt að leggja mat á hversu margir flugfarþegar verði skikkaðir til dvalar á hótelinu í dag. Í dag eru þrjú flug áætluð hingað til lands. Frá Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Barcelona. Af þessum þremur er Stokkhólmur eina borgin sem skilgreind er inni á hááhættusvæði.

Gunnlaugur segir þá brögð að því að fólk sé ósátt við að vera skikkað til að taka út sína sóttkví á hótelinu, þegar það hafi í önnur hús að venda. Starfsfólk sýni því skilning.

„En á móti finnst mér okkar gestir langflestir vera að sýna stöðunni líka skilning, og okkar starfsfólki. Við vitum að margir eru kannski ósáttir, en flestir eru yfirvegaðir og vilja bara gera gott úr þessu saman.“

Eitt tilvik hefur verið tilkynnt til lögreglu, þar sem gestur á hótelinu ákvað að yfirgefa hótelið. Gunnlaugur segir það mál vera á borði lögreglu.

Hann segir þá að umræða síðustu daga, um mögulegt ólögmæti þess að skikka fólk til sóttkvíar á hótelinu hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsfólk. Hann segir þó að gott verði að fá úr því skorið hvort reglugerðin sem starfsemi hótelsins byggir á standist lög.

Opnanlegir gluggar en engin útivera

Gunnlaugur áréttar að hægt sé að opna glugga hótelherbergjanna, þrátt fyrir orðróm um annað.

„Það er alrangt. Ég efast einhvern veginn um að þetta væri fjögurra stjörnu hótel ef gluggar í herbergjum væru ekki opnanlegir.“

Tekið hefur verið fyrir alla útivist gesta á hótelinu, en óljóst var í fyrstu hvort reglugerðin heimilaði útivist gesta eða ekki. Gunnlaugur segir það hafa reynst mörgum gestum erfitt að fá ekki að fara í stuttar gönguferðir, líkt og leyfilegt er þegar fólk er í heimasóttkví.

„Menn töldu að um þessa sóttkví myndi gilda það sama og um heimasóttkví. Að fólk hefði frelsi til að fara í stutta göngutúra. Svo í rauninni þegar túlkun á reglugerðinni frá heilbrigðisráðherra lá fyrir, þá tekur hún alveg fyrir að fólk í sóttvarnarhúsi fari út fyrir hússins dyr meðan á sóttkví stendur," segir Gunnlaugur.


Tengdar fréttir

Hvorki heimild né vilji til þess að hindra för fólks

Ein tilkynning hefur verið send til lögreglu vegna einstaklings sem ákvað að yfirgefa sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni, þar sem fólki er gert að dvelja eftir komuna til landsins. Það heyrir til undantekninga að fólk vilji yfirgefa hótelið að sögn upplýsingafulltrúa Rauða krossins, sem segir heilt yfir hafa gengið mjög vel að taka á móti gestum.

Sumir lagt á flótta á meðan aðrir djamma

Dæmi eru um að fólk hafi lagt á flótta úr sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. Óánægju virðist gæta á meðal gesta og hafa tveir lagt fram kæru til héraðsdóms. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×