Tugir látnir og um tvö hundruð sitja föst eftir lestarslys Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. apríl 2021 09:10 Björgunarfólk að stöfum við að koma fólki út úr lestinni. Fyrir ofan lestina má sjá gula vinnuvél sem sögð er hafa runnið út á lestarteinana, með þeim afleiðingum að lestin fór af sporinu. NFA/AP Minnst 41 hefur látist og hátt í tvö hundruð eru föst í lestargöngum í Taívan eftir að hraðlest fór út af sporinu þar í gær. Tugir eru slasaðir og björgunarfólk reynir hvað það getur að komast að fólkinu.
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu lenti lestin á vinnuvél sem hafði runnið út á lestarteinana við munna gangnanna. Ekki liggur fyrir hvernig það atvikaðist að vélin rann út á teinana. Lestin var á leið frá Taipei, höfuðborg Taívans, til Taitung. Margt fólk var í lestinni þar sem fólk í landinu ferðast nú milli landshluta vegna árlegs vikufrís sem stendur þar yfir. Talið er að hátt í fimm hundruð manns hafi verið um borð í lestinni og að einhverjir hafi staðið sökum fjölda um borð. Farþegar öftustu vagnanna komu best undan slysinu og gátu sumir þeirra komist sjálfir út úr lestinni. Um hundrað manns hefur þegar verið bjargað út úr göngunum, en um tvö hundruð eru enn föst þar. Slysið átti sér stað klukkan níu að morgni að staðartíma, eða klukkan eitt í nótt á íslenskum tíma. Tsai Ing-wen, forseti Taívans, sagði í yfirlýsingu að það væri hið mesta forgangsmál að ná fólki út úr göngunum sem fyrst.
Taívan Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira