Trump segist munu ræða við forseta Taívan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“ Erlent 21.5.2026 07:20
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18.5.2026 07:58
Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir Lai Ching-te, forseti Taívan, segir þarlend stjórnvöld ekki munu grípa til aðgerða sem gætu leitt til átaka en á sama tíma muni þau ekki gefa eftir sjálfræði landsins. Erlent 18.5.2026 06:49
Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan. Erlent 29. desember 2025 07:48
Bað forsætisráðherra Japan að ögra ekki Kínverjum Nokkrum dögum eftir að Sanae Takaichi, nýr forsætisráðherra Japan, reitti ráðamenn í Kína til reiði með því að segja að innrás Kínverja í Taívan gæti leitt til hernaðarviðbragðs frá Japönum, ræddi Xi Jinping, forseti Kína, við Donald Trump, kollega sinn í Bandaríkjunum. Xi er sagður hafa verið bálreiður og varði hálftíma af klukkutímalöngu símtalinu í að útskýra fyrir Trump að Kína ætti í raun Taívan. Erlent 27. nóvember 2025 10:12
„Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Ráðamenn í Kína eru enn fjúkandi reiðir í garð Japana vegna ummæla nýs forsætisráðherra Japans um Taívan frá síðustu viku. Meðal annars hafa Kínverjar hótað því að „rústa“ Japan og krefjast þeir þess að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, dragi ummæli sín um að Japanir myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar, geri Kínverjar innrás í eyríkið, til baka. Erlent 14. nóvember 2025 11:10
Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Embættismenn í Kína hafa brugðist reiðir við ummælum nýs forsætisráðherra Japans um að Japanar myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar geri Kínverjar innrás í eyríkið í framtíðinni. Háttsettur kínverskur erindreki í Japan skrifaði til að mynda færslu þar sem hann gaf til kynna að hausinn yrði höggvinn af Sanae Takaichi, forsætisráðherra. Erlent 10. nóvember 2025 14:40
Taívanir vilja reisa varnarhjúp gegn Kína Stjórnvöld í Taívan hyggjast reisa loftvarnahjúp til að vernda landið gegn utanaðkomandi ógnum. Þetta tilkynnti William Lai, forseti Taívan, degi eftir að stjórnvöld vöruðu við því að Kínverjar ynnu að því að auka getu sína til að ráðast á landið. Erlent 10. október 2025 07:47
Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Xi Jinping, forseti Kína, er sagður reyna að nota ákafa Donalds Trump, kollega síns í Bandaríkjunum, til að gera viðskiptasamning ríkjanna á milli til að ná fram sínu helsta baráttumáli. Xi vonast til þess að fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn og standa gegn sjálfstæði eyríkisins. Erlent 28. september 2025 11:04
Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta Taívan og þrír aðrir sem störfuðu fyrir stjórnarflokk landsins hafa verið dæmdir fyrir njósnir. Mennirnir eru sagðir hafa njósnað fyrir Kína og voru þeir dæmdir í fjögurra til tíu ára fangelsi. Erlent 26. september 2025 16:12
Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa neitað að samþykkja umfangsmikla hergagnasendingu til Tavían í sumar, á sama tíma og hann reynir að semja við Xi Jinping um viðskiptasamband ríkjanna og mögulegan fund þeirra á milli. Erlent 19. september 2025 14:20
Drekinn beraði vígtennurnar Kínverjar héldu í morgun stærðarinnar hersýningu í Peking þar sem nýjustu hergögn ríkisins voru opinberuð og mörg þeirra í fyrsta sinn. Þar sýndu ráðamenn í Kína aukinn hernaðarmátt ríkisins. Erlent 3. september 2025 14:22
Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Báðum flugmóðurskipum Kína hefur verið siglt um Kyrrahafið undanfarna daga og er það í fyrsta sinn sem skipin eru notuð þar saman. Ráðamenn í Japan hafa áhyggjur af auknum hernaðarumsvifum Kínverja á Kyrrahafinu og víðar. Svipaða sögu er að segja frá Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. Erlent 12. júní 2025 10:32
Lækkanir halda áfram Markaðir heims hafa ekki tekið tollaálögum Donald Trump Bandaríkjaforseta vel og héldu lækkanir síðustu daga áfram við opnun í nótt markaða í Asíu, um leið og enn meiri tollahækkanir tóku gildi. Viðskipti innlent 9. apríl 2025 08:04
Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Yfirvöld í Kína ætla sér að „berjast til endaloka“ ætli Bandaríkin að halda áfram að stigmagna tollastríðið. Í yfirlýsingu frá viðskiptaráðuneyti Kína eru Bandaríkin sökuð um kúgun. Þar segir einnig að hótanir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að hækka enn frekar tolla gegn Kína séu mistök. Hærri tollar taka gildi á morgun víða um heim. Erlent 8. apríl 2025 06:34
Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vinna að því að koma Patriot-loftvarnarkerfum fyrir á herskipum. Er það vegna ótta um að Kínverjar gætu notað ofurhljóðfráar eldflaugar til að sökkva herskipum á Kyrrahafi. Erlent 26. október 2024 16:36
Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar. Erlent 14. október 2024 15:29
Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Nýjasti kjarnorkuknúni kafbátur Kína sökk við bryggju í vor. Um er að ræða nýja gerð kafbáta og er þetta fyrsti báturinn af þeirri gerð. Hann sökk við skipasmíðastöð nærri Wuhan í Kína. Ráðamenn í Kína hafa lagt mikla áherslu á uppbyggingu kínverska kafbátaflotans og var reynt að hylma yfir atvikið. Erlent 27. september 2024 11:07
Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Kínverjar framkvæmdu í morgun tilraun með langdræga skotflaug sem borið getur kjarnorkuvopn. Eldflaugin bar gervi-sprengiodd og var henni skotið í Kyrrahafi en þetta er í fyrsta sinn í nokkra áratugi sem Kínverjar gera tilraun sem þessa. Erlent 25. september 2024 14:01
Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Öll þrjú flugmóðurskip Kína voru á dögunum saman á sjó og er það í fyrsta sinn sem Kínverjar ná þessum áfanga. Stutt er í tólf ára afmæli þess að Kínverjar tóku fyrsta flugmóðurskipið í notkun og er fyrsta skipið sem þróað er og byggt í Kína í sjóprófunum. Erlent 24. september 2024 15:24
Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna. Erlent 18. september 2024 11:22
550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lögregluyfirvöld á Taílandi hafa ráðist gegn stærsta ólöglega klámhring sem vitað er um í landinu. Um 550 manns voru handteknir í tengslum við málið, sem varðar deilingar á barnaníðsefni og myndskeiðum af konum sem voru tekin án samþykkis þeirra. Erlent 2. ágúst 2024 08:53
Barist við olíuleka og flóð í kjölfar fellibylsins Gaemi Yfirvöld á Filippseyjum berjast nú við að takmarka olíuleka frá tankskipinu MT Terra Nova, sem fór á hliðina þegar fellibylurinn Gaemi gekk yfir. Um borð voru 1,5 milljón lítrar af olíu, sem óttast er að gætu náð ströndum höfuðborgarinnar Manila. Erlent 25. júlí 2024 08:18
Kínverjar æfa innrás á Taívan Kínverjar iðka nú tveggja daga langa heræfingu í kringum Taívan og segja þeir æfinguna vera refsingu gagnvart eyjaskeggjum sem þeir saka um aðskilnaðarstefnu. Erlent 23. maí 2024 07:53