Veiðin hefst á fimmtudaginn Karl Lúðvíksson skrifar 29. mars 2021 08:27 Stangveiðitímabilið 2021 hefst næsta fimmtudag og það eru margir veiðimenn og veiðikonur komin út á brún í spennunni.
Stangveiðitímabilið 2021 hefst næsta fimmtudag og það eru margir veiðimenn og veiðikonur komnir út á brún í spennunni. Það er alltaf gaman þegar nýtt veiðitímabil fer í gang en í ljósi veðuraðstæðna ætlum við að láta það vera að kalla þetta veiðisumar að sinni. Það er heldur köld spá framundan og þá sérstaklega á norðurlandi en norðanáttir verða að mestu ríkjandi fyrstu dagana eins og spáinn stendur í dag með tilheyrandi kulda og úrkomu. Veiðimenn láta þetta ekkert á sig fá, það er nokkuð ljóst, því það er mikið bókað á öllum vinsælustu svæðunum og það má greinilega merkja meiri aðsókn á mörg svæðin ef skoðað er framboð veiðileyfa. Það sem við ætlum bara að mæla með er að allir séu vel klæddir og með nóg af heitum drykk á brúsa þegar staðið verður við bakkann þess fyrstu daga.
Stangveiði Mest lesið Stundum vill hann bara Frigga Veiði 50 laxar á 3 dögum úr Skjálfanda Veiði Síðsumarsflugan sem má ekki gleymast Veiði Dagur 2 í Ytri-Rangá: Alls 16 á land Veiði Fljúgandi start í Ytri Rangá Veiði Veiðimenn kalla eftir ódýrari gistingu Veiði Góð opnun í Steinsmýrarvötnum Veiði Mikill subbuskapur við sum vötnin Veiði Fyrstu veiðitölur úr Veiðivötnum Veiði Bleikjan mætt í þjóðgarðinn Veiði