Sviss og Danmörk byrja undankeppnina á útisigrum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. mars 2021 19:05 Sviss byrjaði leik kvöldsins af miklum krafti. EPA-EFE/Vassil Donev Sviss og Danmörk byrja undankeppnina fyrir HM 2022 í Katar á góðum útisigrum. Sviss vann Búlgaríu 3-1 á meðan Danmörk vann Ísrael 2-0.
Sviss var ekki í miklum vandræðum í fyrsta leik C-riðils í undankeppni HM 2022 í dag. Það tók liðið í raun aðeins þrettán mínútur að klára leik sinn gegn Búlgaríu á útivelli. Breel Embolo kom Sviss yfir á 7. mínútu. Þremur mínútum síðar skoraði Haris Seferovic annað mark Sviss eftir sendingu Xerdan Shaqiri. Staðan orðin 2-0 gestunum í vil eftir aðeins tíu mínútna leik og þremur mínútum síðar kom þriðja markið sem gerði svo gott sem út um leikinn. Þar var að verki Steven Zuber, einnig eftir sendingu Shaqiri. Eftir það róaðist leikurinn aðeins og staðan enn 0-3 er flautað var til hálfleiks. Kiril Despodov minnkaði muninn fyrir heimamenn í upphafi síðari hálfleiks en nær komust þeir ekki og lokatölur 3-1 Sviss í vil. Í F-riðli tók Ísrael á móti Danmörku. Martin Braithwaite, framherji Barcelona, var allt í öllu í upphafi leiks en á sjöundu mínútu fékk hann gult spjald fyrir klaufalegt brot. Hann bætti upp fyrir það með því að skora fyrsta mark leiksins þegar hann lyfti boltanum snyrtilega yfir Ofir Marciano í marki Ísrael. Var það eina mark fyrri hálfleiks og var staðan 1-0 allt þangað til Jonas Wind tvöfaldaði forystu gestanna á 67. mínútu. Staðan orðin 2-0 og reyndust það lokatölur leiksins.
Fótbolti HM 2022 í Katar Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Sjá meira