Innlent

Sau­tján greindust innan­­lands og þrír utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Líkt og áður hefur verið greint frá þá tengjast fjöldi smita Laugarnesskóla.
Líkt og áður hefur verið greint frá þá tengjast fjöldi smita Laugarnesskóla. Vísir/Vilhelm

Sautján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórtán þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír utan sóttkvíar. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á einum degi síðan 30. nóvember.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. 75 eru nú í einangrun, samanborið við 57 í gær. 454 eru nú í sóttkví, en voru 435 í gær. 1.186 eru nú í skimunarsóttkví. Þá er einn á sjúkahúsi vegna Covid-19.

Fimm greindust á landamærum í gær, þrír í fyrri landamæraskimun og tveir í seinni landamæraskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 7,6, en var 3,0 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 12,5, en var 11,7 í gær.

19.887 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 18.255 til viðbótar.

6.144 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.416 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 513 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 141 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Tímasetningin „eins slæm og hugsast getur“

Skólastjóri Laugalækjarskóla segir að skimunarsóttkví sem allir nemendur skólans hafa verið sendir í á morgun, 24. mars, gæti varla hafa komið á verri tíma. Árshátíð 8.-10. bekkja skólans, hápunktur ársins, átti að fara fram á morgun en hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna ástandsins.

Allir nemendur Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla í úrvinnslusóttkví

Allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugalækjaskóla í Reykjavík fara í úrvinnslusóttkví á morgun, miðvikudaginn 24. mars. Gripið er til þessa ráðstafana vegna fjölgunar kórónuveirusmita meðal nemenda í Laugarnesskóla. Allur árgangur 6. bekkjar í Laugarnesskóla, sem og 5. flokkur karla í knattspyrnu hjá Þrótti, er jafnframt í sóttkví.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×