Fyrsta sýnishornið úr Saumaklúbbnum Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2021 10:34 Kvikmyndin verður frumsýnd þann 9. apríl. Þann 9. apríl verður kvikmyndin Saumaklúbburinn frumsýnd en um er að ræða sjálfstæða kvikmynd í anda Síðustu veiðiferðarinnar sem sló rækilega í gegn í íslenskum kvikmyndahúsum í fyrra.
Myndin fjallar um fimm konur á besta aldri sem skella sér saman í bústað til að hafa það reglulega gott og slaka á, frjálsar frá sífelldu amstri hversdagsins. Undir huggulegu yfirborðinu leynast þó gamlar syndir sem leysast úr læðingi þegar síst varir. Uppgjör er óumflýjanlegt og allt fer hreinlega til andskotans hratt og örugglega. Með aðalhlutverk fara Edda Björg Eyjólfsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Elma Lísa Gunnarsdóttir. Það er Rannveig Gagga Jónsdóttir sem leikstýrir. Gagga og Snjólaug Lúðvíksdóttir sömdu handritið. Þetta er þriðja gamanmyndin í röð frá framleiðendunum Erni Marinó Arnarsyni og Þorkeli Harðarsyni, en frá þeim komu Síðasta veiðiferðin og Amma Hófí. Tökur fóru fram sumarið 2020 á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu en hér að neðan má sjá fyrsta brotið úr myndinni sem er frumsýnt á Vísi. Klippa: Saumaklúbburinn - sýnishorn
Menning Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Íslenskar kvikmyndir sem beðið er eftir Á hverju ári koma út nokkrar íslenskar kvikmyndir og árið 2021 verður stórt í íslenskum kvikmyndaiðnaði. 4. janúar 2021 13:30 Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira
Íslenskar kvikmyndir sem beðið er eftir Á hverju ári koma út nokkrar íslenskar kvikmyndir og árið 2021 verður stórt í íslenskum kvikmyndaiðnaði. 4. janúar 2021 13:30