Innlent

Úr­slita­ein­vígið í Ís­lands­bikarnum hafið

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þeir Hjörvar og Hannes tefla til úrslita í dag og á morgun. Ef það verður jafnt eftir tvær skákir verður teflt til þrautar á mánudag.
Þeir Hjörvar og Hannes tefla til úrslita í dag og á morgun. Ef það verður jafnt eftir tvær skákir verður teflt til þrautar á mánudag. Vísir/Vilhelm

Nú er teflt til úrslita á Íslandsbikarnum í skák, en tveir stigahæstu skákmenn landsins, þeir Hjörvar Steinn Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson mætast í úrslitaeinvíginu. Sigur tryggir farseðilinn á heimsbikarmótið í skák.

Úrslitarimman hófst klukkan tvö, en hér má nálgast beint streymi Skáksambandsins þar frá, auk skákskýringa. 

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, sagði blaðamanni frá undanúrslitaviðureignum gærdagsins. Fyrirkomulagið var á þá leið að fyrst eru tefldar tvær atskákir (25+10). Verði jafnt verða tefldar aðrar tvær atskákir en þó með styttri umhugsunartíma (10+10).

Verði enn jafnt verða tefldar tvær hraðskákir (5+3). Verði enn jafnt verður tefld bráðabanaskák þar sem svörtum dugar jafntefli. Hvítur fær 5 mínútur en svartur fær 4 mínútur. Viðbótartími, 2 sekúndur bætast við eftir á hvern leik eftir 60 leiki.

„Eins og að fá á sig mark þegar þú ert undir í framlengingu í fótboltaleik“

Hjörvar mætti Guðmundi Kjartanssyni, sem varð í gær fimmtándi stórmeistari Íslands í skák. Hjörvar vann báðar skákirnar og því tefldu þeir aðeins tvisvar í gær.

„Í fyrri skákinni sneri Hjörvar svolítið á [Guðmund] í endataflinu. Í seinni skákinni þá var hún eiginlega að fara í jafntefli, þá reyndi Guðmundur að vinna, lagði á stöðuna en tapaði. Þetta er bara eins og að fá á sig mark þegar þú ert undir í framlengingu í fótboltaleik, þetta breytir engu,“ segir Gunnar.

Í hinu einvíginu gekk öllu meira á, samkvæmt Gunnari. Þar mættust Hannes Hlífar og Helgi Áss Grétarsson.

„Helgi Áss vann fyrri skákina, Hannes jafnaði og þá var aftur framlengt. Þá vann Hannes báðar skákirnar, en í fyrri skákinni hefði hann koltapað á tíma, en Helgi lék af sér,“ segir Gunnar.

Línurnar skýrast um eða eftir helgi

Fyrri skák Hjörvars og Hannesar í úrslitaeinvíginu hófst klukkan tvö í dag. Dregið var um liti í gær og hefur Hannes hvítt í fyrri skákinni, að því er fram kemur á skák.is

Síðari skákin verður klukkan tvö á morgun. Verði jafnt eftir skákirnar tvær verður teflt til þrautar á mánudaginn klukkan fimm síðdegis. Það kemur því í ljós á morgun eða á mánudag hver tryggir sér titilinn á mótinu og farseðilinn á heimsbikarmótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×