Fékk skilaboð frá Tiger fyrir lokahringinn og kláraði dæmið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. mars 2021 11:31 Bryson DeChambeau lyftir bikarnum eftir sigurinn á Arnold Palmer Invitational. getty/Sam Greenwood Bryson DeChambeu hrósaði sigri á Arnold Palmer Invitational mótinu á PGA-mótaröðinni í golfi eftir mikla baráttu við Lee Westwood. Aldrei munaði meira en einu höggi á þeim DeChambeu og Westwood á síðustu fimmtán holunum. DeChambeu lék á einu höggi undir pari á lokahringnum og samtals á ellefu höggum undir pari, einu höggi á undan Westwood. Corey Connors varð þriðji á átta höggum undir pari. Þetta var áttundi sigur DeChambeus á PGA-mótaröðinni á ferlinum. Hann sagði hafa fengið hvatningu frá Tiger Woods, sem liggur nú á spítala og jafnar sig eftir bílslys, fyrir lokahringinn. Klippa: DeChambeu vann Arnold Palmer Invitational „Við töluðum bara um að berjast hvað sem á gengi og spila og herra Palmer sagði,“ sagði DeChambeu. „Að vinna mótið hans Palmers var ekki í mínum villtustu draumum. Ég kom hingað sem áhugamaður og hann bauð mér að spila og ég elskaði völlinn hans frá fyrstu mínútu. Ég elska það sem hann gerði með staðinn og arfleiðina sem hann skilur eftir sig. Þetta er frekar ótrúlegt.“ Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone. Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn, íslenskur körfubolta og það besta frá Bandaríkjunum Sport Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira
Aldrei munaði meira en einu höggi á þeim DeChambeu og Westwood á síðustu fimmtán holunum. DeChambeu lék á einu höggi undir pari á lokahringnum og samtals á ellefu höggum undir pari, einu höggi á undan Westwood. Corey Connors varð þriðji á átta höggum undir pari. Þetta var áttundi sigur DeChambeus á PGA-mótaröðinni á ferlinum. Hann sagði hafa fengið hvatningu frá Tiger Woods, sem liggur nú á spítala og jafnar sig eftir bílslys, fyrir lokahringinn. Klippa: DeChambeu vann Arnold Palmer Invitational „Við töluðum bara um að berjast hvað sem á gengi og spila og herra Palmer sagði,“ sagði DeChambeu. „Að vinna mótið hans Palmers var ekki í mínum villtustu draumum. Ég kom hingað sem áhugamaður og hann bauð mér að spila og ég elskaði völlinn hans frá fyrstu mínútu. Ég elska það sem hann gerði með staðinn og arfleiðina sem hann skilur eftir sig. Þetta er frekar ótrúlegt.“ Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.
Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn, íslenskur körfubolta og það besta frá Bandaríkjunum Sport Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira