Innlent

„Ekki boðlegt að vera ekki með aðstæður fyrir fólk svo sómi sé af“

Kristín Ólafsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa
Víðir Reynisson segir að mun meira af sínum tíma fari nú í að sinna jarðhræringunum á Reykjanesskaga en heimsfaraldrinum.
Víðir Reynisson segir að mun meira af sínum tíma fari nú í að sinna jarðhræringunum á Reykjanesskaga en heimsfaraldrinum. Vísir/Vilhelm

Ekki munu fást upplýsingar um Covid-smittölur um helgar frá og með þessari helgi. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir þessa ákvörðun endurspegla góða stöðu á faraldrinum innanlands og tími hafi verið kominn til að gefa tölfræðiteyminu helgarfrí. Enn greinist fólk þó smitað á landamærum og þá hefur hingað til þurft að vísa sjö einstaklingum úr landi, sem ekki gátu framvísað tilskildum Covid-prófum eða öðrum pappírum.

Unnið er að því að útbúa sérstakt svæði á Keflavíkurflugvelli fyrir þá einstaklinga sem þarf að vísa úr landi vegna þessa en fáar flugferðir gera það að verkum að þó nokkur tími getur liðið þangað til fólk kemst úr landinu.

„Vonandi verður það tekið í gagnið í vikunni, þetta snýst bara um það að geta boðið mannsæmandi aðstæður á meðan fólk er að bíða eftir því að fara til baka. Það er auðvitað ekki boðlegt að vera ekki með aðstæður fyrir fólk svo sómi sé af,“ segir Víðir.

Sjá verðmæti í opnu samfélagi

Víði líður ekki eins og fólk sé orðið kærulausara gagnvart sóttvarnaráðstöfunum nú þegar faraldurinn er í lágmarki.

„Mér finnst bara almennt að þrátt fyrir að staðan sé góð að við séum bara öll samtaka í því að reyna að halda henni þannig. Ég held að menn upplifi það, svona horfandi í kringum sig, að þetta séu ákveðin verðmæti og mjög verðmæt staða að geta þó verið með þetta opið samfélag. Okkar tilfinning er bara að fólk sé áfram á fullu með í þessu.“

Dregið hefur úr tilkynningum um möguleg sóttvarnarbrot á síðustu vikum.

„Það náttúrulega tengist því að mjög mikið af þessum tilkynningum sneru að fjöldatakmörkunum og núna þegar fjöldatakmörkin eru orðin fimmtíu þá eiga flestir mjög auðvelt með að fara eftir þeim og þetta hefur bara verið að ganga mjög vel finnst okkur.“

Smitrakningarteymið komið úr níutíu í fjóra

Fjórir eru nú vakt hjá smitrakningarteyminu hverju sinni en níutíu manns voru í teyminu þegar mest lét sem sinnir sömuleiðis verkefnum í tengslum við landamærin.

Víðir segir að staðan sé góð á landamærunum og langflestir sem komi til landsins geti framvísað neikvæðu PCR-prófi líkt og gert er krafa um. Þó sé eitthvað um að fólk framvísi niðurstöðum sem uppfylli ekki skilyrði stjórnvalda, til að mynda úr svokölluðum hraðprófum sem ekki eru tekin gild hér á landi.

Borið hefur á auknum kröfum um frekari afléttingar á sóttvarnaaðgerðum hér á landi að undanförnu nú þegar það er orðin undantekning að ný smit greinist innanlands. Núverandi reglur gilda til og með 17. mars.

„Auðvitað bíða margir spenntir eftir því hvað næsta reglugerð felur í skauti sér. Hvort hún felur í sér einhverjar tilslakanir verður bara að koma í ljós, Þórólfur er að meta það og fer í það í komandi viku,“ segir Víðir en langstærstur hluti vinnutíma hans fer nú í að sinna jarðhræringunum á Reykjanesskaga.


Tengdar fréttir

Engar Covid-tölur um helgar

Ekki munu fást upplýsingar um Covid-smittölur um helgar frá og með þessari helgi. Þetta segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri almannavarna í samtali við fréttastofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×