Gunnar Karl Haraldsson er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. febrúar 2021 21:22 Gunnar Karl Haraldsson varð 26 ára í september í fyrra. Rizza Fay Elíasdóttir Gunnar Karl Haraldsson framhaldsskólakennaranemi, Eyjapeyi og baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks er látinn 26 ára gamall. Fjölskylda hans greindi frá andlátinu á Facebook í dag en Gunnar Karl lést í morgun eftir baráttu við krabbamein.
Oft er sagt að ekki sé jafnt gefið í þessu lífi og mætti segja það í tilfelli Gunnars Karls sem þurfti að synda á móti straumnum frá unga aldri. Gunnar Karl glímdi við taugasjúkdóminn Neurofibromatosis frá unga aldri en sjúkdómurinn leggst mjög misjafnlega á fólk. Hann gerði það illa í tilfelli Gunnars Karls sem endurtekið þurfti að gangast undir aðgerðir á fæti, hrygg og mjöðm. Skólaganga hans var stopul vegna ítrekaðra aðgerða. Þegar hann var sautján ára var vinstri fótur hans tekinn af við hné. Rætt var við Gunnar Karl um aðgerðina og árin fram að henni í Ísland í dag árið 2014. Þrátt fyrir að nota hjólastól var Gunnar Karl oftar en ekki á ferð og flugi. Hann var virkur í stúdentapólitíkinni, fór út að skemmta sér með vinum sínum og skrifaði pistla þar sem hann snerti meðal annars á aðgengismálum fatlaðs fólks. Hann stakk reglulega niður penna og sótti kappleiki fyrir vefmiðilinn Fótbolti.net og greindi fagmannlega frá því sem fram fór. Það var svo fyrir rúmum tveimur árum sem Gunnar Karl fékk blóðtappa í lungun og fór í hjartastopp í 26 mínútur. Hann hafði þá nýlokið prófum við Háskóla Íslands og kominn í kærkomið jólafrí þegar honum fór skyndilega að líða illa og átti erfitt með andardrátt. Gunnar Karl ræddi hjartastoppið í viðtali við Fréttablaðið í mars 2019. Þrátt fyrir hjartastoppið og þá erfiðleika sem því fylgdi útskrifaðist Gunnar Karl með BA-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði um vorið með stæl. Í lok síðasta árs dundi enn eitt áfallið yfir þegar Gunnar Karl greindist með illkynja æxli í kviðarholi. Gunnar mætti því verkefni af krafti eins og öðrum sem hann þurfti að glíma við. „Saman getum við vakið athygli á því hversu marga krabbamein snertir á einn eða annan hátt. Það er svo gott að sjá og finna að maður er ekki einn. Þín reynsla skiptir máli — saman getum við hjálpað öðrum. Lífið er núna! og muna að njóta!“ sagði Gunnar Karl í færslu á Facebook þann 5. febrúar síðastliðinn. Gunnar Karl ásamt vinum sínum þeim Heimi Hallgrímssyni, Kjartani Ólafssyni Vídó og Sigurjón Lýðssyni sem fóru tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu árið 2017. Þá söfnuðu þeir áheitum fyrir Reykjadal, sumarbúðir fyrir börn með fötlun. Gunnar Karl fór einnig tíu kílómetra árið áður og safnaði fyrir sumarbúðunum sem hann dvaldi sjálfur í og naut vel. Allt það mótlæti sem Gunnar Karl glímdi við kom ekki í veg fyrir jákvæðni hans og brosmildi sem voru eitt hans helsta einkenni. Hann var mjög vinamargur og lét erfiðleikana ekki stöðva sig. Hann kunni ekki að meta neina vorkunn eða samúð heldur minnti fólk á að hann væri venjuleg manneskja. Hann var virkur í félagsstörfum og stoltur af heimabænum Vestmannaeyjum þangað sem hann flutti aftur í fyrra eftir fjögurra ára dvöl í Reykjavík. Gunnar Karl er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans eru Kristín Gunnarsdóttir og Haraldur Þorsteinn Gunnarsson. Hann á tvær eldri systur, Eyrúnu og Hrefnu.
Andlát Vestmannaeyjar Tengdar fréttir Fór í hjartastopp í 26 mínútur Gunnar Karl Haraldsson hefur alla tíð tekið hlutskipti sínu af æðruleysi. Hann fæddist með taugasjúkdóm sem lagðist mjög þungt á hann og hefur ekki tölu á þeim aðgerðum sem hann fór í sem barn og unglingur. 2. mars 2019 09:14 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Sjá meira
Fór í hjartastopp í 26 mínútur Gunnar Karl Haraldsson hefur alla tíð tekið hlutskipti sínu af æðruleysi. Hann fæddist með taugasjúkdóm sem lagðist mjög þungt á hann og hefur ekki tölu á þeim aðgerðum sem hann fór í sem barn og unglingur. 2. mars 2019 09:14