Jón Axel var aðeins einu stigi frá því að ná pabba sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2021 12:00 Jón Axel Guðmundsson var frábær í gær og lét ekki misheppnuð skot í byrjun leiksins trufla sig. Hann snögghitnaði síðan og skoraði 29 stig. fiba.basketball Jón Axel Guðmundsson hefur aldrei skorað fleiri stig í landsleik en hann gerði í flottum sigri á Slóvakíu í gær í forkeppni að undankeppni HM 2023. Jón Axel skoraði 29 stig í leiknum auk þess að taka 6 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Jón klikkaði á fyrstu fimm skotum sínum í leiknum en hitti síðan úr 9 af síðustu 13 skotum sínum sem er geggjuð hittni. Jón Axel nýtt sex af tíu þriggja stiga skotum sínum í Prishtina í gær. Jón Axel bætti sitt persónulega stigamet með landsliðinu um fimm stig og var á endanum aðeins einu stigi frá því að jafna við föður sinn. Jón Axel hafði mest áður skorað 24 stig í einum landsleik en það var á móti Andorra á Smáþjóðaleikunum í San Marínó árið 2017. Þriðji tuttugu stiga leikur Jóns Axels er síðan á móti Portúgal í undankeppni EM 2019. Guðmundur Bragason, faðir Jóns Axels, á landsleikjametið en hann skoraði mest 30 stig í einum landsleik á sínum landsleikjaferli. Guðmundur setti sitt persónulega met á móti Englendingum í Keflavík 27. desember 1994 en Guðmundur skoraði þá 30 stig í 105-101 sigri í vináttuleik þjóðanna. Guðmundur skoraði mest 27 stig í leik í keppni en það var á móti Noregi í undanriðli EM 4. maí 1991. Jón Axel er því kominn fram úr föður sínum á þeim lista.
Jón Axel skoraði 29 stig í leiknum auk þess að taka 6 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Jón klikkaði á fyrstu fimm skotum sínum í leiknum en hitti síðan úr 9 af síðustu 13 skotum sínum sem er geggjuð hittni. Jón Axel nýtt sex af tíu þriggja stiga skotum sínum í Prishtina í gær. Jón Axel bætti sitt persónulega stigamet með landsliðinu um fimm stig og var á endanum aðeins einu stigi frá því að jafna við föður sinn. Jón Axel hafði mest áður skorað 24 stig í einum landsleik en það var á móti Andorra á Smáþjóðaleikunum í San Marínó árið 2017. Þriðji tuttugu stiga leikur Jóns Axels er síðan á móti Portúgal í undankeppni EM 2019. Guðmundur Bragason, faðir Jóns Axels, á landsleikjametið en hann skoraði mest 30 stig í einum landsleik á sínum landsleikjaferli. Guðmundur setti sitt persónulega met á móti Englendingum í Keflavík 27. desember 1994 en Guðmundur skoraði þá 30 stig í 105-101 sigri í vináttuleik þjóðanna. Guðmundur skoraði mest 27 stig í leik í keppni en það var á móti Noregi í undanriðli EM 4. maí 1991. Jón Axel er því kominn fram úr föður sínum á þeim lista. Flest stig feðganna í einum A-landsleik: 30 stig - Guðmundur Bragason á móti Englandi 1994 29 stig - Jón Axel Guðmundsson á móti Slóvakíu 2021 27 stig - Guðmundur Bragason á móti Noregi 1991 27 stig - Guðmundur Bragason á móti Noregi 1998 26 stig - Guðmundur Bragason á móti Austurríki 1993 26 stig - Guðmundur Bragason á móti San Marínó 1995 26 stig - Guðmundur Bragason á móti Eistlandi 1995 26 stig - Guðmundur Bragason á móti Svíþjóð 1996 25 stig - Guðmundur Bragason á móti San Marínó 1993 25 stig - Guðmundur Bragason á móti Lettlandi 1996 24 stig - Jón Axel Guðmundsson á móti Andorra 2017 24 stig - Guðmundur Bragason á móti Kýpur 19988 24 stig - Guðmundur Bragason á móti Englandi 1994
Flest stig feðganna í einum A-landsleik: 30 stig - Guðmundur Bragason á móti Englandi 1994 29 stig - Jón Axel Guðmundsson á móti Slóvakíu 2021 27 stig - Guðmundur Bragason á móti Noregi 1991 27 stig - Guðmundur Bragason á móti Noregi 1998 26 stig - Guðmundur Bragason á móti Austurríki 1993 26 stig - Guðmundur Bragason á móti San Marínó 1995 26 stig - Guðmundur Bragason á móti Eistlandi 1995 26 stig - Guðmundur Bragason á móti Svíþjóð 1996 25 stig - Guðmundur Bragason á móti San Marínó 1993 25 stig - Guðmundur Bragason á móti Lettlandi 1996 24 stig - Jón Axel Guðmundsson á móti Andorra 2017 24 stig - Guðmundur Bragason á móti Kýpur 19988 24 stig - Guðmundur Bragason á móti Englandi 1994
Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Handbolti Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Fleiri fréttir Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Sjá meira