Innlent

Dregur úr fylgi Sjálf­stæðis­flokksins

Atli Ísleifsson skrifar
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,5 prósent og jókst um tæplega fjögur prósentustig frá síðustu könnun.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,5 prósent og jókst um tæplega fjögur prósentustig frá síðustu könnun. Vísir/Vilhelm

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,2 prósent í nýrri könnun MMR, rúmlega tveimur prósentustigum lægra en í síðustu könnun sem framkvæmd var í janúar 2021.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MMR. Þar segir að fylgi Vinstri grænna hafi aukist um tæp þrjú prósentustig milli kannana og mælist nú 13,5 prósent. Fylgi Samfylkingarinnar lækkar um tvö og hálft prósentustig og mælist nú 13,1 prósent.

„Þá jókst fylgi Framsóknarflokksins um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 11,4% og fylgi Viðreisnar jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 10,6%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,5% og jókst um tæplega fjögur prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,9%.

  • Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,2% og mældist 24,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 13,5% og mældist 10,9% í síðustu könnun.
  • Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1% og mældist 15,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 11,4% og mældist 12,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,4% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,6% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,1% og mældist 4,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,6% og mældist 4,9% í síðustu könnun.
  • Stuðningur við aðra mældist 2,0% samanlagt,“ segir í tilkynningunni.

Könnunin var framkvæmd dagana 12. til 18. febrúar og var heildarfjöldi svarenda 919 einstaklingar, 18 ára og eldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×