Innlent

Hverfandi líkur á því að af samstarfi við Pfizer verði

Kolbeinn Tumi Daðason, Eiður Þór Árnason og Birgir Olgeirsson skrifa
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að loknum fundi í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að loknum fundi í dag. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir hverfandi líkur á því að af rannsóknarverkefni í samstarfi við Pfizer verði. Þetta sagði Þórólfur við fréttastofu að loknum fundi Þórólfs, Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og Más Kristjánssonar, yfirlæknis smitsjúkdómadeildar Landspítalans með fulltrúum Pfizer. Fundurinn hófst klukkan 16 og er nýlokið.

„Ég myndi segja það að það séu mjög litlar líkur á því að það verði af þessu, það er ekki búið að slá það alveg út af borðinu en það eru svona hverfandi líkur finnst mér,“ sagði Þórólfur í samtali við fréttastofu rétt eftir fundinn. Hann sagði málin hafa verið rædd á fundinum en að engin samningsdrög liggi fyrir. Hann gat ekki svaraði því hvort eitthvað ákveðið atriði hafi sett strik í reikninginn.

Fórnarlömb eigin árangurs

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að ástæðan fyrir áhugaleysi lyfjaframleiðandans sé að tilfelli Covid-19 á Íslandi séu einfaldlega ekki nægjanlega mörg. Hann á ekki von á því að farið verði í viðræður við önnur lyfjafyrirtæki enda myndu sömu röksemdir blasa við, sem erfitt sé að andmæla.

„Við erum fórnarlamb eigin árangurs,“ segir Kári. „Ef við hefðum verið með svona tuttugu tilfelli á dag þá hefði þetta gengið.“

Var aldrei í hendi

„Ég er búinn að segja það allan tímann, annað hvort gengur þetta eða gengur ekki. Það hefur ekki verið neinn samningur eða samningsdrög á borðinu þrátt fyrir allar þessar sögur. Við vorum bara að ræða málin og við eigum bara eftir að skýra betur frá þessu á næstunni,“ sagði Þórólfur.

Vonast var til að svonefnd fjórða fasa rannsókn Pfizer gæti tryggt þorra Íslendinga skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech gegn Covid-19 á næstu misserum. Mikil eftirvænting hefur verið eftir niðurstöðu samningaviðræðna. Fyrst var greint frá því skömmu fyrir jól að Kári og Þórólfur væru í viðræðum við Pfizer og fleiri lyfjaframleiðendur um að slík rannsókn færi fram hér á landi.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Kári, Már og Þórólfur funda með Pfizer klukkan 16

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir funda með vísindamönnum frá lyfjafyrirtækinu Pfizer klukkan 16 í dag.

Upplýst umræða um Pfizer rannsóknina verði að fara fram

Þrír prófessorar og tveir dósentar í heimspeki kalla eftir upplýsingum frá sóttvarnayfirvöldum um mögulega fjórða fasa rannsókn Pfizer hér á landi. Aðeins þannig geti upplýst samfélagsumræða farið fram sem sé afar mikilvæg í tengslum við rannsókn af slíkri stærðargráðu og raun ber vitni.

Segir Kára ekki hafa átt frum­kvæði að við­ræðum við Pfizer

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að hann hafi sjálfur viðrað þá hugmynd við bóluefnaframleiðandann Pfizer að Ísland verði rannsóknarsetur fyrir fjórða fasa rannsókn á bóluefninu. Það hafi ekki verið Kári Stefánsson sem hafi fyrstur haft samband við Pfizer hvað þetta varðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×