Íslandsmótið í fótbolta aldrei byrjað fyrr Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2021 14:30 Valur og Breiðablik voru krýnd Íslandsmeistarar á síðustu leiktíð. vísir/vilhelm/hulda Drög að leikjadagskrá fyrir Íslandsmótið í fótbolta hafa nú verið birt. Keppni í úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildinni, hefst sumardaginn fyrsta eða 22. apríl og hefur leiktíðin aldrei hafist svo snemma.
Íslandsmótið átti reyndar einnig að hefjast 22. apríl í fyrra en hófst ekki fyrr en í júní vegna kórónuveirufaraldursins. Mótið hefur langoftast hafist í maí en met var sett vorið 2019 þegar fyrsti leikur var 26. apríl. Í Pepsi Max-deild karla er upphafsleikurinn á milli Íslandsmeistara Vals og ÍA á Hlíðarenda. Þrír leikir fara fram 23. apríl, þar sem nýliðar Keflavíkur og Leiknis verða á ferðinni og mæta Stjörnunni og Víkingi, og tveir laugardaginn 24. apríl, meðal annars stórleikur Breiðabliks og KR. Áætlað er að lokaumferð deildarinnar fari fram 25. september. Tímamótaleikur á Sauðárkróki Í Pepsi Max-deild kvenna fer fyrsta umferð sumarsins fram dagana 4. og 5. maí. Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti Fylki miðvikudaginn 5. maí í fyrsta leik sínum undir stjórn Vilhjálms Kára Haraldssonar. Þá verður sögulegur leikur á Sauðárkróki þar sem Tindastóll spilar sinn fyrsta leik frá upphafi í efstu deild í fótbolta, gegn Þrótti. Hinir nýliðarnir, Keflvíkingar, taka á móti Selfossi. Keppni í Pepsi Max-deild kvenna á að ljúka 12. september samkvæmt áætlun. Þá hafa einnig verið birtar á vef KSÍ fyrstu umferðirnar í Mjólkurbikar karla og kvenna, þar sem lið úr efstu deildum sitja hjá, og drög að leikjadagskrá í öðrum deildum. Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Lengjudeild karla Lengjudeild kvenna Mjólkurbikar karla Mjólkurbikar kvenna
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna KSÍ Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira