Johns Snorra, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr hefur nú verið saknað í um þrjá sólarhringa á K2. Leit undir stjórn pakistanska hersins hefur ekki borið árangur en tvær herþyrlur þurftu frá að hverfa í morgun vegna erfiðra veðurskilyrða og lélegs skyggnis.
Fjölskylda Johns Snorra segir í tilkynningu að þegar myrkur skelli á í fjallinu, um klukkan 14 að íslenskum tíma, sé vonin um að þeir finnist á lífi mjög lítil. Aðstæður á fjallinu séu virkilega erfiðar og kuldinn mikill.
„Við vitum að núna þegar myrkrið skellur á í fjallinu er lítil von um að John finnist á lífi. Hugur okkar er hjá John Snorra, Ali og J Pablo. Sajid er kominn til byggða og við erum þakklát fyrir að hann er öruggur,“ er haft eftir Línu Móey, eiginkonu John Snorra, í tilkynningu.
Sajid Sadpara, sonur Ali, ætlaði upp á topp ásamt hópnum en sneri við aðfaranótt föstudags þegar hann lenti í vandræðum með súrefniskút. Hann sá þremenningana síðast við flöskuháls í um 8.200 metra hæð, eða um fjögur hundruð metra frá toppnum.
Þakklát fyrir allan stuðninginn
Fjölskylda Johns Snorra hefur dvalið saman á heimili hans undanfarna daga til að fylgjast með aðgerðum og veita hvert öðru stuðning. Fjölskyldan þakkar jafnframt öllum sem hafa stutt þau á þessum erfiðu tímum; íslenskum stjórnvöldum, borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni og Geimvísindastofnun Íslands.
„Og einnig þökkum við pakistönskum stjórnvöldum og öllum þeim sem tóku þátt í leitinni á fjallinu og hafa gert allt sem hægt er til að finna John Snorra, Ali og Juan Pablo,“ er haft eftir Línu Móey. Þá segir hún þetta erfiðan tíma fyrir fjölskylduna og óskar eftir andrými til að takast á við hann.
Sjerpinn Chhang Dawa greindi frá því á samfélagsmiðlum í morgun að leitarteymið bíði eftir veðurglugga og þá verði haldið til leitar að nýju.
Tilkynning fjölskyldu John Snorra í heild:
Leit að John Snorra, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á K2, undir stjórn pakistanska hersins, hefur staðið yfir í þrjá daga án árangurs. Ljóst er að þegar myrkur skellur á í fjallinu, um 14:00 að íslenskum tíma, er vonin um að þeir finnist á lífi mjög lítil því aðstæður á fjallinu eru virkilega erfiðar og kuldinn mikill. Sjaid Ali Sadpara, sonur Muhammad, sem var einnig hluti af hópnum sem ætlaði á tindinn, er nú kominn til byggða en hann sneri til baka á föstudaginn vegna bilunar í súrefniskút.
„Við vitum að núna þegar myrkrið skellur á í fjallinu er lítil von um að John finnist á lífi. Hugur okkar er hjá John Snorra, Ali og J Pablo. Sajid er kominn til byggða og við erum þakklát fyrir að hann er öruggur,“ segir Lína Móey, eiginkona John Snorra.
Fjölskylda John Snorra hefur verið samankomin á heimili hans til að fylgjast með aðgerðum og til að styðja hvert annað við þessar erfiðu aðstæður. Hún hefur fengið mikinn stuðning frá íslenskum stjórnvöldum sem hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að leitin sé eins umfangsmikil og hún hefur verið síðustu sólarhringa og komið á góðum samskiptum við stjórnvöld í Pakistan. Fjölskyldan er jafnframt þakklát fyrir mikinn stuðning og hlýhug frá fjölmörgum aðilum.
„Við þökkum öllum þeim sem hafa stutt við okkur, sent okkur hlýjar kveðjur og hvatningarorð. Við erum þakklát íslenskum stjórnvöldum, borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni og Geimvísindastofnun Íslands fyrir ómetanlegan stuðning og fagmennsku meðan á leitinni hefur staðið. Og einnig þökkum við pakistönskum stjórnvöldum og öllum þeim sem tóku þátt í leitinni á fjallinu og hafa gert allt sem hægt er til að finna John Snorra, Ali og Juan Pablo,“ segir Lína Móey.
„Þetta er erfiður tími okkur fjölskylduna og við óskum eftir því að fá andrými til að takast á við þessa þungbæru stöðu.“