„Ég er spenntur fyrir því að vera á Íslandi og hlakka til að kynnast landinu og hitta eins marga Íslendinga og hægt er á næstu mánuðum. Ég hyggst dýpka sterkt og árangursríkt samband Bandaríkjanna og Íslands enn frekar,“ er haft eftir Kaimian á Facebook-síðu sendiráðsins.
Fram kemur á heimasíðu þess að Kamian hafi síðast starfað sem varasendiherra og staðgengill fastafulltrúa Bandaríkjanna gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu frá 2017 fram til ágúst í fyrra.
Kamian hefur unnið hjá bandaríska utanríkisráðuneytinu frá árinu 2013 og meðal annars unnið í Víetnam, Síle, Tyrklandi, Kúbu og El Salvador. Alls hefur hann starfað í 28 ár við utanríkisþjónustu.
Hann er með mastersgráðu í utanríkisþjónustu frá Georgetown-háskóla og BA-gráðu í alþjóðatengslum og spænsku frá University of California, Davis. Harry er giftur Robin Dunnigan, sem hefur einnig starfað á vegum utanríkisþjónustunnar, og eiga þau saman tvö börn.
Sakaði Fréttablaðið um „falsfréttaflutning“
Jeffrey Ross Gunter, fyrrverandi sendiherra, var tilnefndur af Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, og vakti meiri athygli í starfi sínu hér á landi en margir forverar hans.
Í sumar greindi fréttastofa CBS-sjónvarpsstöðvarinnar frá því að sendiherrann vildi bera byssu á Íslandi og hefði óskað eftir aukinni öryggisgæslu, þrátt fyrir að utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafi tilkynnt honum að hann væri ekki í hættu.
Í október síðastliðnum sakaði bandaríska sendiráðið svo Fréttablaðið um „falsfréttaflutning“ í færslu á Facebook-síðu sinni. Færslan kom í kjölfar fréttar á vef blaðsins um að starfsmaður sendiráðsins hafi greinst með Covid-19 áður en flutningi lauk í ný húsakynni þess við Laufásveg.
Sendiráðið hafnaði því og sagði íslenskan starfsmann hafa smitast „löngu eftir“ að nýja sendiráðið hefði verið vígt. Fréttablaðið stóð við fréttaflutning sinn en starfsmenn sendiráðsins afturkölluðu samdægurs boð miðilsins í hringborðsumræður í sendiráðinu.
Ötull stuðningsmaður Trumps
Fyrir þetta olli Gunter fjaðrafoki þegar hann tísti um „ósýnilegu Kínaveiruna“ í júlí og brugðust margir illa við þeim ummælum hans. Í kjölfarið söfnuðu Bandaríkjamenn á Íslandi undirskriftum og hvöttu íslensk stjórnvöld til þess að vísa sendiherranum úr landi.
Gunter er virkur meðlimur í Repúblikanaflokknum, hefur verið ötull stuðningsmaður Trumps og meðal annars stutt framboð hans fjárhagslega. Hann var fyrir skipun sína reynslulaus sem erindreki en hafði um árabil starfað sem húðsjúkdómalæknir í Kaliforníu.